Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni.
Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið
Þegar nafnið Clive Barker er framan á tölvuleik býst maður við einhverju spennandi, ógnvekjandi og taugatrekkjandi. Síðasti tölvuleikurinn sem bar nafn hans var leikurinn Undying og hafði sá leikur all ofantalda kosti. Clive Barker´s Jericho er alveg laus við spennu, ógnvekjandi umhverfi eða taugatrekking, nema ef geyspi telst til taukatrekkings.
Því miður þá virkar Clive Barker´s Jericho frekar illa sem er leiðinlegt þar sem hugmyndin á bakvið leikinn er áhugaverð. Söguþráðurinn snýst um herdeild sem berst við hið illa hvar sem það er að finna og í leiknum brýst hið illa fram í einskonar hliði í miðri eyðimörk. Hliðið er inngangur að helvíti og þarf herdeildin að þramma þar niður til að forða heiminum frá eyðileggingu.
Því miður er leikhæfnin, andrúmsloftið og myndræn vinnsla leiksins ekki eins áhugaverð og söguþráðurinn, ef svo hefði verið væri Clive Barker´s Jericho leikur uppá 10.
Grafíkin á ágæta spretti inn á milli, blóðug og eins og sláturhús í helvíti. Ef að fólki líkar þannig myndmál þá er Clive Barker´s Jericho algerlega málið. Það er nóg af springandi hausum og innyflum til að fylla heilu gámana. Til lengdar er þetta þó ósköp einhæft og þreytandi. Karakterarnir sem að spilarinn spilar eru frekar heimskulega útlítandi en óvinir eru ágætlega teiknaðir. Grafíkin er á engan hátt framúrskarandi en að sama skapi þá er hún heldur ekki fyrir neðan meðallag.
Hljóðið í leiknum gerir mest til að spilla fyrir andrúmsloftinu. Hljóðið er arfaslakt, byssur, vopn og verjur hljóma illa og eins þær séu algerlega kraftlausar. Raddsetningin er framkvæmd með hálfum hug og tónlistin er klén.
Gervigreind óvina sem og vina er ekki til staðar, þetta gerir leikinn nánast óspilandi. Hægt er að svissa á milli hermannanna í herdeildinni, svona til að fá smá fjölbreytni í þetta, verst er að þeir spilast allir eins. Clive Barker´s Jericho er svo í ofanálag mjög stuttur, veit ekki hvort það er kostur eða galli.
Það er erfitt að mæla með Clive Barker´s Jericho, til þess er leikurinn enfaldlega of leiðinlegur.
Grafík 2.5
Einhæf og um leið yfirþyrmandi. Eini stíllinn sem fyrirfinnst í leiknum er springandi hausar, sem er ekki nóg.
Hljóð 2.0
Arfaslakt á alla kanta, effektar, umhverfishljóð og raddsetning virka hálfköruð.
Tækni 2.0
Engin gervigreind til staðar, hvort sem er hjá óvinum eða vinum, sem að gerir leikinn nánast óspilandi.
Leikhæfni og ending 1.0
Enginn leikhæfni og mjög stuttur leikur sem telst bæði sem galli og kostur
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð.
Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun