Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni.
Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið
Ghost Recon leikirnir hafa alltaf átt sinn aðdáendahóp, spilarar sem að hafa viljað raunveruleikann beint í æð, skotleik þar sem eitt skot frá óvininum þýðir bara eitt, snöggann endi. Ghost Recon inniheldur hasar og spennu enn aldrei af heilalausu sortinni, hér er allt útreiknað og skipulagt í þaula. Þessi leikaðferð er ekki fyrir alla enn þeir sem að líkar hún fá hér mikið fyrir sinn snúð.
Ghost Recon Advanced Warfighter 2 er í raun yfirfærsla á PC af Xbox 360, á Xbox 360 var búið að auðvelda leikinn og gera hann byrjendavænni enn sem betur fer var upprunalega spilaðferðin sett í Pésa útgáfuna. Söguþráður leiksins er frekar klénn eins og oftast og snýst í stuttu máli um baráttu hersveitar þinnar að ná kjarnorku sprengjum frá hóp hryðjuverkamanna. Verkefnin sem spilarinn fær hafa þetta að markmiði og verða alltaf erfiðari og erfiðari eftir því sem takmarkið færist nær.
Grafíkin ber þess merki að hafa verið færð yfir af leikjatölvu, hún er einfaldari en maður á að venjast af Pésanum og umhverfið er frekar einhæft. Karakterarnir eru þó mjög vel teiknaðir og farartæki eru vel útfærð. Í heildina er grafíkin allt í lagi en hér er ekkert sem að ber af.
Hljóðið er einfalt, byssugjamm og raddir úr talstöðvum eru 90% af hljóðinu. Þetta er ágætlega gert og passar við þemað. Raddsetningin hefði þó mátt vera fjölbreyttari og leikararnir mátt lifa sig meira inn í hlutverkin. Það er eitthvað skrýtið að heyra yfirmanninn segja í talstöðina að samherji hafi dáið í sama róm og hann væri að bjóða manni pulsu með öllu.
Helsti galli Ghost Recon Advanced Warfighter 2 er gervigreindin. Hún er slök bæði hjá óvinum og vinum. Óvinirnir fatta seint hvar maður er, en þegar þeir vita af manni ná þeir að drepa mann með óvenju nákvæmum skotum. Félagar manns eru frekar heimskir og á stundum eins þeir séu blindir, ekki gott kaffi.
Það sem reddar Ghost Recon Advanced Warfighter 2 algjörlega er Netspilunin, þar er boðið upp á mjög marga möguleika og ef að líkum lætur ætti Ghost Recon Advanced Warfighter 2 að verð mjög vinsæll á Netinu.
Það er hægt að mæla með Ghost Recon Advanced Warfighter 2 fyrir þá sem að hafa spilað seríuna og líkað vel. Fyrir aðra þá er ekki eftir miklu að slægjast.
Grafík 3.5
Einfalt og án allra skreytinga, það sést að leikurinn hefur verið yfirfærður af öðru farartæki.
Hljóð 3.5
Minimalískt og raunverulegt, raddsetning gæti verið vandaðri og fjölbreyttari.
Tækni 3.5
Gervigreind bæði vina og óvina er ekki nógu góð, reyndar óvenju slök miðað við að þetta er þriðji leikur í seríu.
Leikhæfni og ending 4.0
Þeir sem að fíla Ghost Recon munu skemmta sér vel. Netspilunin er svo eiginlega betri en einmenningsleikurinn.
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð.
Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun