
Það eru fáir leikir sem að hafa skapað þvílíka eftirvæntingu eins og Halo 3. Leikurinn er búinn að seljast í bílförmum síðan á útgáfudag og hefur hann einnig aukið sölu á Xbox 360 leikjavélinni til muna. Það er ekkert skrýtið enda Halo serían ansi vel heppnuð og Halo 3 algjör snilld. Í Halo 3 er búið að laga næstum því alla þá galla sem að fyrirrennararnir höfðu og um leið betrumbæta leikinn með allskyns nýjungum. Ef það var einhverntímann ástæða til að versla sér Xbox 360 þá er Halo 3 sú ástæða.
Halo 3 er ótrúlega vel heppnaður tölvuleikur. Allt virkar á topp máta, hvort sem um er að ræða grafík, hljóð, leikhæfni eða tæknilegu hliðina. Halo 3 er ekki fullkominn, en fer ansi nálægt því að vera fullkomnasti tölvuleikur sem að sést hefur til þessa.
Í ofanálag er svo Netspiluninn í Halo 3 sú flottasta sem að hefur komið fram til þessa og á Halo 3 án efa eftir að verða vinsælasti Netleikurinn til þessa.
Grafíkin í Halo 3 er mögnuð, hér á ferð er svo sannarlega þriðju kynslóðar tölvuleikur. Karakterar, vopn, farartæki og borð eru frábærlega vel hönnuð og útfærslan hrein snilld. Leikurinn er skarpur og tær, litríkur og vel teiknaður. Það er hvergi galla að finna á Halo 3 á þessu sviði.
Hljóðið virkar vel, flottir effektar og umhverfishljóð í topp gæðum. Tónlistin er frábær, epísk og vel fallinn að stríðsástandinu í leiknum. Tal á milli spilara virkar vel og er þessi möguleiki mjög vel heppnaður.
Aðall Halo 3 er án efa Netspiluninn. Hægt er að spila alla þessa venjubundnu Net leiki, en það sem er mest spennandi er að spila í liði með félögum sínum. 4 félagar geta spilað samann í liði og leyst leikinn. Þessi möguleiki er mjög flottur og eitthvað sem að fleiri leikja framleiðendur mættu taka upp.
Einmenningsleikurinn er ansi stuttur og má segja að það sé aðal galli Halo 3, sem betur fer er einmenningsleikurinn hálfgert aukaatriði, fjölspilun er það sem að Halo 3 snýst um.
Það er lítið mál að mæla með Halo 3 og það liggur við að hann sé skyldueign fyrir Xbox eigendur.
Grafík 5.0
Frábær grafík, alvöru þriðju kynslóðar bragur yfir öllu. Það besta sem að hefur sést á Xbox 360 og þó víðar væri leytað.
Hljóð 4.5
Vel gert að öllu leyti, tónlistin er frábær og tæknilega séð virkar allt eins og það á að gera.
Tækni 5.0
Nánast fullkominn, ekkert sem að plagar nógu mikið til að kvarta yfir. Rennur ljúflega um rafrásir Xbox 360.
Leikhæfni og ending 4.5
Eini gallinn er hve stuttur einmenningsleikurinn er, Netspiluninn bætir það þó upp og meira til. Frábær leikur, kauptu hann núna.
Fyrir: Xbox 360
Snorri Gunnarsson