leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



03/08/2007 | 00:00

Marathon: Durandal : Klassík á nýju farartæki

Flestir aðdáendur fyrstupersónu skotleikja vita af Halo tölvuleiknum frá Bungie. Það sem færri vita er að í fyrndinni gerði Bungie eingöngu leiki fyrir Makkann og að Halo á sér í raun forvera, leikinn Marathon. Marathon var einn af fyrstu alvöru fyrstupersónu skotleikjunum, hann var samtíma Doom leikjunum á Pésanum og var einskonar svar Makkans við Doom. Marathon varð óhemju vinsæll meðal leikjavina og eftir að leikurinn varð að antík voru menn enn að spila hann á hermum á nýrri Apple vélunum. Eins og flestir vita eignaðist helsti keppinautur Apple, Microsoft svo Bungie fyrirtækið og breytti áherslunum meðal annars þá settu þeir þróun Halo fyrir Makkann í salt og ákváðu að gefa hann út fyrir Pésann fyrst. Það er því soldið skrýtið að sjá Marathon pússaðan upp og gefinn út aftur fyrir Xboxið og víst að sumir Makka eigendur séu ekki mjög hressir yfir því.

Það hefur tekist nokkuð vel til með að pússa Marathon: Durandal upp og er grafíkin bara nokkuð góð. Hún er auðvitað ekki á par við nýjustu fyrstupersónu skotleikina. Það er hægt að spila leikinn með upprunalegu grafíkinni og sést þá hversu mikið hefur verið lagað og fínpússað.
Tónlistin er sú sama og í denn, rokkuð tónlist, svolítið gamaldags en ágæt, það er lítið af henni sem er nú bara kostur. Effektar og umhverfishljóð hljóma svipað og í gamla leiknum, voru ágæt á sínum tíma en frekar slöpp á nýrri öld.

Aðal galli Marathon: Durandal er að leikurinn spilast eins og sá gamli. Það hefur ekkert verið átt við hluti eins og gervigreind. Gervigreind óvinanna er því frekar tilþrifalítil og á engann hátt sambærileg við það sem er að gerast í dag.
Annað sem að pirrar aðeins er að framleiðendur leiksins hafa pumpað rammana sem sjást á hverri sekúntu upp í 60. Þar sem grafíkin er nú ekki erfið þá er leikurinn svo snöggur að maður verður hálf sjóveikur.
Það er um að gera fyrir aðdáendur fyrstupersónu skotleikja að kynna sér Marathon: Durandal, ef ekki fyrir leikinn sjálfan sem er bara ansi góður, þá til að sjá hvar öll herlegheitin byrjuðu. Fyrir Makka eigendur er líklega vænlegra að setja upp hermi í tölvunni hjá sér frekar en að punga út fyrir Xbox 360, ef þeir hinsvegar eiga eitt stykki Xbox þá er um að gera að skella sér á Marathon: Durandal.

Grafík 3.0
Hefur verið löguð til en nær ekki að komast upp fyrir meðallagið.

Hljóð 3.0
Effektar og umhverfishljóð eru mjög gamaldags sem að passar svosem ágætlega.

Tækni 3.0
Gervigreind óvinanna er mjög slöpp og 60 rammar á sekúntu er bara of mikið.

Leikhæfni og ending 4.0
Mjög skemmtilegur, hægt að spila á tvískiptum skjá og á Netinu.

Fyrir : Xbox

Snorri Gunnarsson
Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is