leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



18/10/2007 | 00:00

Nýtt og væntanlegt, spáð í spilin


Það er varla seinna vænna en að spá aðeins í það sem er væntanlegt af tölvuleikjum næstu misseri. Gósentíð tölvuleikjanna er í vændum, bara 2 mánuðir til jóla og úr nógu er að moða. Það eru alltaf einhverjir leikir sem að standa upp úr og  um að gera að gera þeim hærra undir sessi með smá umfjöllun.

PC
Það er margt að gerast á pésanum, þrátt fyrir að manni sýnist að tölvuleikirnir séu farnir að koma fyrst á leikjavélarnar og síðan á Pésann, öfugt við það sem áður var.
Nýtt og væntanlegt fyrir PC:

Gears of War, rosalega flottur leikur sem að sló í gegn á Xbox 360, nú er hann á leiðinni á Pésann og ætti að svínvirka á stóra bróður. Þriðjupersónu skotleikur sem að býður upp á ótrúlegan hraða og ýmsar nýjungar. Aðrir leikir sem að eiga eftir að gera það gott og fjölmenna undir jólatréin.
Pro Evolution Soccer 2008, Need For Speed: ProStreet, Championship Manager 2008, Final Fantasy XI: Wings of the Goddess Resident Evil 4 [UK]

Playstation 3
Playstation 3 er alltaf að sækja í sig veðrið og fyrir þessi jól verður úrvalið af leikjum ansi mikið. Allskyns gerðir af leikjum fyrir fjölbreittan hóp spilara líta dagsins ljós. Einn af topp leikjunum þessi jól er án efa Call of Duty 4: Modern Warfare. Þar á ferð er klassískur skotleikur sem hefur gert það gott síðustu ár. Í þetta sinn er sögusviðið nær nútímanum sem að ætti að gera hlutina ennþá meira spennandi. Aðrir leikir sem að ættu ekki að valda vonbrigðum eru Guitar Hero III: Legends of Rock, Ratchet & Clank Future: Tools of Destruction, LEGO Star Wars: The Complete Saga, Soldier of Fortune: Pay Back og Silent Hill 5

Xbox 360
Er án efa sú leikjatölva sem að hefur flesta titla að bjóða. Þessi jól verða engin undantekning á þeirri reglu og ótrúlegur fjöldi af leikjum sem að koma út fyrir Xbox 360 þessi jól. Guitar Hero III: Legends of Rock ætti að verða vinsæll enda ótrúlega skemmtilegur leikur að spila með vinum og vandamönnum. Leikur númer 2 var ótrúlega vinsæll og ætti þriðji leikurinn að gera það jafngott. Aðrir leikir sem vert er að fylgjast með eru: Naruto: Rise of a Ninja, Virtua Fighter 5, Call of Duty 4: Modern Warfare, LEGO Star Wars: The Complete Saga, Need for Speed ProStreet, Soldier of Fortune: Pay Back og Final Fantasy XI: Wings of the Goddess

Wii
Er fyrir alla fjölskylduna og tilvalin í jólaboðin, Indoor Sports frá Konami ætti ekki að klikka þar. Klassískur keppnisleikur þar sem að stýripinni Wii leikjatölvunnar fær að njóta sín. Aðrir spennandi leikir eru: Dancing With The Stars, Guitar Hero III: Legends of Rock, Manhunt 2, Hooked! Real Motion Fishing, Cabela's Big Game Hunter 2008, LEGO Star Wars: The Complete Saga, Showtime Championship Boxing, Resident Evil: Umbrella Chronicles og Soulcalibur Legends

Apple
Makkinn hefur aldrei verið þekktur fyrir tölvuleiki, þar á bæ má segja að gæðin séu tekinn fram fyrir magnið. Rjóminn af tölvuleikjunum koma út fyrir Makkann og eftir að Makkinn var Intel væddur hafa fleiri tölvuleikir litið dagsins ljós þar á bæ. Einn af þeim meira spennandi þar á bæ er StarCraft II. StarCraft er eins og Warcraft nema gerist í geimnum og var fyrsti leikurinn ótrúlega vinsæll enda klassa leikur þar á ferð. Í þetta skiptið er leikurinn mun flottari of fullkomnari. Allt hefur verið bætt sem hægt er að bæta og verður spennandi að sjá StarCraft II. Aðrir leikir sem að eru í spilunum eru: Guitar Hero III: Legends of Rock, Gears of War, EVE Online (óstaðfest) og Tiger Woods PGA Tour 2008

Það lítur út fyrir að komandi mánuðir verði spennandi fyrir leikjavini óháð því hvaða farartæki þeir velja sér. Nóg er úr að moða og ættu allir að geta sett saman sinn eiginn óskalista.

Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is