Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni.
Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið
SEGA Rally rallýleikirnir eru án efa þeir elstu í bransanum. Til þessa hefur áherslan verið á hasar og fjörugan akstur. Á því er enginn breyting í þetta skiptið, hasarinn og fjörið er til staðar og hefur aldrei virkað eins vel. SEGA Rally lítur mjög vel út líklega flottasti SEGA Rally leikurinn til þessa. Í kaupbæti er svo búið að bæta við Netspilun, sem að virkar ótrúlega vel og bætir leikinn til muna.
Grafíkin í SEGA Rally er mjög flott, brautirnar eru vel hannaðar og teiknaðar og allt umhverfið er skýrt og flott. Bílarnir eru einnig mjög flottir. Eini gallinn er að bílarnir skemmast ekkert. Það er eitthvað sem ætti að vera í hverjum einasta rallý leik.
Hljóðið er vel gert, bílarnir hljóma sannfærandi og krafturinn í rallý bílunum kemst vel til skila. Tónlistin er ágæt fyrir þá sem að finnst að rallý bílar eigi að vera með útvarp, fyrir aðra þá er hægt að slökkva á henni.
Eins og áður segir fer SEGA Rally í allt aðrar áttir en aðrir rallý leikir. leikurinn er spennandi og hasarinn er mikill. Þetta gerir leikinn aðgengilegan fyrir flesta spilara. Þeir sem að vilja frekar nákvæmni og raunveruleika ættu að leita á önnur mið.
Netspilunin í SEGA Rally er mjög vel útfærð. Hraðinn og spennan halda áfram og hvergi er bilbug að finna á leiknum á Netinu.
Það er vel hægt að mæla með SEGA Rally fyrir spilara sem að hafa ekki spilað mikið af rallý leikjum áður, hér er hasar og fjör í fyrirrúmi og auðvelt að læra á leikinn. Tilvalinn partýleikur til að spila með vinum og vandamönnum.
Grafík 4.0
Mjög vel gert að öllu leyti. Allt vel teiknað og brautirnar mjög vel hannaðar. Vantar að bílarnir skemmist.
Hljóð 4.0
Sannfærandi effektar og umhverfishljóð. Tónlistin er ekki eftirminnileg enda hugurinn upptekinn við annað.
Tækni 4.0
SEGA Rally rennur ljúft áfram og ekki neina galla að finna á þessu sviði.
Leikhæfni og ending 3.5
Netspiluninn færir SEGA Rally á hærra plan en ella. Hægt að spila hann endalaust á Netinu.
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð.
Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun