leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



22/11/2007 | 19:48

Sex vonbrigði

F.E.A.R. Perseus Mandate
Sama og síðast nema að núna er grafíkin, þrívíddarvélin og söguþráðurinn gamall. Týpískt dæmi um græðgi, endurunninn tölvuleikur gefin út nánast eins útlítandi og í fyrsta skiptið. Ætti að banna þetta.
Fyrir: PC

Clive Barker´s Jericho
Lofaði góðu, Clive Barker framan á boxinu sem ætti að þýða gæði. Því miður þrátt fyrir spennandi spretti er leikurinn of einfaldur. Eftir fyrsta borðið hefur maður séð allt áður og leikurinn hjakkar áfram í farinu. Sleppa þessum.
Fyrir: PC, Xbox 360, Playstation 3

Hellgate: London
Annar leikur sem að lofaði góðu en tókst ekki að uppfylla væntingar. Hellgate: London á sína aðdáendur en fyrir meðaljóninn er hann ekki þess virði að eyða púðri og peningum á. Maður hefur séð þetta allt áður og verðlaunin og hlutirnir sem að maður fær eru ekki nógu spennandi til þess að spila áfram. Diablo var betri.
Fyrir: PC

You Are Empty
Skrítnasta útgáfan fyrir þessi jól. Gamaldags skotleikur með gamaldags grafík og þreyttri þrívíddarvél. óvinirnir eru fyndnir í fáránleika sínum og það sem átti líklega að vera stílhreint er bara asnalegt. Tæknilega séð minnir You Are Empty svo á Wolfenstein sirka 1994.
Fyrir: PC

Tony Hawk´s Proving Ground
Jæja spurning um að Tony fari að gera eitthvað annað en að pimpa nafninu sínu á enn einn tölvuleikinn. Ekkert sem að hreyfir við manni, sama gamla kartöflustappan og var borin á borð fyrir ári síðan. Bragðið hefur ekkert batnað með mánuðunum.
Fyrir: Playstation 3, Xbox 360, Wii, Nintendo DS og Playstation 2

Sim City Societies
Já enn einn Sim City leikurinn í þetta skiptið hefur eitthvað brunnið yfir í heilunum á sköpurum Sim City. Engin markmið, ruglingsleg útfærsla og grafíkin flókin. Allt gerir Þetta að verkum að þolinmæðin, sem er það sem maður þarf í Sim leikjum, þrýtur mjög fljótt.
Fyrir: PC

Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is