
Tekken leikirnir eru án efa bestu bardaga tölvuleikir sem að hafa komið út fyrir leikjatölvur. Tekken leikirnir hafa allt til að bera sem að prýðir frábæran tölvuleik. Leikhæfni, góð grafík, frábærar hreyfingar og keppni við mannlega mótherja gerir Tekken ómótstæðilegan.
Tekken: Dark Resurrection hefur verið fáanlegur fyrir Playstation 3 leikjavélina í nokkurn tíma, en nú er kominn viðbót við leikinn sem að leyfir Net spilun. Þessi möguleiki er hreint frábær og eiginlega punkturinn yfir iið á Tekken. Tekken: Dark Resurrection er bein yfirfærsla af spilakassa og sést að sumu leyti, enda Playstation 3 vélin mun kraftmeiri. Það verður víst að bíða enn um sinn að Tekken 6 komi á Playstation 3 vélina.
Grafíkin í Tekken: Dark Resurrection er mjög flott og með því besta sem að er boðið upp á þessa dagana á Playstation 3 leikjavélinni. Karakterarnir eru meistaralega teiknaðir umhverfið er flott. Myndræn vinnsla leiksins er veisla fyrir augað. Hverki er galla að finna á myndrænni útfærslu leiksins og eiga skaparar leiksins hrós skilið fyrir vinnuna. Net útgáfan gefur staðbundnu útgáfunni ekkert eftir sem er ansi magnað.
Hljóðið er flott, effektar og bardagahljóð eru áhrifamikil og tónlistin er ágæt. Það er hægt að slökkva á tónlistinni fyrir þá sem að fíla hana ekki. Hér er hvergi snöggann blett að finna á leiknum.
Það sem að hefur alltaf lyft Tekken upp fyrir aðra bardaga leiki er hvernig karakterarnir hreyfa sig. Þeir hreyfa sig alveg ótrúlega raunverulega þrátt fyrir margra metra hopp og brögð sem að eru varla möguleg í raunheimum.
Karakterarnir eru allir litríkir og hver og einn er með sín brögð og er það mjög gaman að kanna hvern karakter fyrir sig. Sumir virka betur í byrjun þegar kunnáttan er lítil en aðrir vaxa með aukinni spilun.
Fjölspilunarmöguleikinn er líka eitt af því sem að gerir Tekken að eins frábærum leik og raun ber vitni og Net viðbótin eykur á leikhæfni leiksins. Þetta er í raun viðbót sem að aðdéndur Tekken leikjanna hafa beðið eftir enda ekkert eins gaman og að spila á móti mannlegum mótherjum.
Tekken: Dark Resurrection er alger nauðsyn fyrir alla eigendur Playstation 3 leikjavélarinnar, klassík.
Grafík 4.5
Frábær grafík í hæsta gæðaflokki, með því betra sem sést hefur á Playstation 3 leikjavélinni til þessa.
Hljóð 4.5
Flottir effektar og bardagahljóð, tónlistin er sæmileg en hvorki betri né verri en í öðrum bardagaleikjum.
Tækni 5.0
Tekken: Dark Resurrection virkar mjög vel á Playstation 3 leikjavélinni, aðall leiksins, hreyfingar karakteranna eru hér til staðar í allri sinni dýrð.
Leikhæfni og ending 5.0
Frábær leikur, einn sá besti á Playstation 3 leikjavélinni í dag. Frábær leikhæfni og fjölspilunin á Netinu virkar mjög vel.
Fyrir Playstation 3
Snorri Gunnarsson