leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



20/09/2007 | 00:00

The Godfather: The Don´s Edition : Sá besti hingað til

Þegar Godfather kom út fyrst fyrir leikjavélarnar var leikurinn eins og blanda af GTA og herkænskuleik. Leikurinn var ansi opinn og spilarinn gat farið hvert sem hann vildi og gert eiginlega það sem hann vildi semsagt algert frelsi. Í Playstation 3 útgáfunni hefur heldur verið aukið á frelsi spilarans sem að virkar mjög vel. Að öðru leyti spilast leikurinn mjög svipað og á hinum leikjavélunum, sömu stjórnmöguleikar og nánast sömu vopn og bardagamöguleikar. Hér á ferð er í raun enn einn afleggjarinn frá GTA leikjunum. Stór opinn leikheimur þar sem spilarinn fær ákveðið frelsi til að ráða framvindu leiksins, tískan í dag enda bráðskemmtileg leik aðferð.

Grafíkin í The Godfather: The Don´s Edition er ágæt. Þrívíddarvélin gerir sitt gagn en hefði þó getað verið sprækari. Umhverfið er ágætlega teiknað og yfirfærslan á Playstation 3 leikjavélina hefur tekist ágætlega. Persónurnar eru mjög vel gerðar, teiknaðar í stíl við kvikmyndina.
Hljóðið er fantagott, raddsetningin er með þeim betri sem maður hefur séð, tónlistin er flott og passar vel við efnið. Effektar og umhverfishljóð eru vel gerð. Þetta var líka raunin með leikinn á öðrum leikjavélum og hefur tekist vel til við að flytja þennan þátt leiksins yfir á Playstation 3 leikjavélina.

Þó svo að The Godfather: The Don´s Edition sé í stórum dráttum byggður upp eins og GTA leikirnir þá eru ýmis atriði sem að eru kynnt til sögunnar hér. Hér er meira lagt upp úr hlutverkaleikjar elementum eins og uppbyggingu karaktersins sem maður spilar. Þetta eykur á víddina í leiknum enda fátt eins vanabindandi eins og það að geta bætt karakterinn með meiri reynslu. The Godfather: The Don´s Edition endist ekkert sérstaklega vel sem er aðallega vegna þess hve stuttur leikurinn er.
Valdabaráttan á milli glæpafjölskyldnanna er mjög vel útfærð sem gerir það að verkum að leikurinn spilast ekki bara sem hasarleikur heldur er aðeins meiri hugsun á bakvið gjörðir manns.
Þó svo að The Godfather: The Don´s Edition hafi ekki uppfyllt allar væntingar sem til hans voru gerðar er útkoman ansi góð. Hér á ferð er leikur sem er vel yfir meðallagi og vel þess virði að skoða nánar fyrir eigendur Playstation 3.

Grafík 3.5
Virkar allt ágætlega en vantar einhvern neista til að flytja leikinn yfir á hærra plan. Sumt gott annað verra, karakterar eru vel teiknaðir en heildar yfirbragðið er frekar dauft.


Hljóð 4.5
Frábærlega vel gert í alla staði. Raddsetningin er mjög vel gerð og leikin og annað er fyrsta flokks. Tónlistin er úr kvikmyndunum og er hún auðvitað algjör snilld

Tækni 3.0
Allt virkar en maður býst við meiru á Playstation3 leikjavélinni. Margt mjög gott hér, RPG möguleikarnir bæta miklu við. Ekki mikið um galla eða klaufalegar útfærslur.


Leikhæfni og ending 3.0
Ekkert sem að lokkar mann að leiknum eftir eitt skipti. Leikurinn er frekar stuttur sem að gerir endinguna frekar slappa.

Fyrir: Playstation 3

Snorri Gunnarsson

Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is