leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



16/08/2007 | 00:00

Tom Clancy´s Rainbow Six: Vegas : Stór leikur á lítilli vél

Tom Clancy´s Rainbow Six leikirnir eiga sér langa sögu og marga aðdáendur. Það sem að heillar fólk mest við Tom Clancy´s Rainbow Six leikina er nákvæmnin og hversu raunverulegir leikirnir hafa verið. Í Tom Clancy´s Rainbow Six: Vegas hafa áherslurnar breyst. Að auki er svo PSP leikjavélin eins langt frá Pésanum sem að Tom Clancy´s Rainbow Six leikirnir voru upphaflega hannaðir fyrir, og hægt er að komast.
Nú er áherslan meira á hasarinn en raunveruleikann sem að hentar PSP leikjavélinni ágætlega. Það verður þó að segjast að PSP útgáfan er langt á eftir öðrum útgáfum í gæðum og gjörfuleika. Því miður hefur ekki heppnast að flytja Tom Clancy´s Rainbow Six: Vegas yfir á PSP, að mörgu leyti skiljanlegt en engu að síður vonbrigði.

Grafíkin í Rainbow Six: Vegas er ágæt, en maður hefur þó séð það betra á PSP vélinni. Karakterar og vopn eru vel teiknuð og virðast vera trú upprunanum. Umhverfið er frekar einhæft, gangar, hótelherbergi og skrifstofur skipa aðalhlutverkið enda snýst leikurinn kannski um annað en útsýnisferð til Las Vegas.
Hljóðið er mjög vel gert, raunverulegt byssuglamur, háværar sprengingar og ágætis raddsetning. Tónlistin er bara áheyrileg enda kvikmyndaleg sem virðist vera það sem virkar best í mín eyru allavegana.

Rainbow Six: Vegas virkar ágætlega tæknilega, svolítið um bögga og hjökt í þrívíddarvélinni. Gervigreind bæði óvina og vina er ágætlega gerð það hjálpar til að það hefur verið fækkað í liðinu, nú eru bara 2 aðstoðarmenn og það má segja að það sé hámarkið fyrir reiknigetu PSP vélarinnar. Herkænskan hefur að miklu leyti vikið fyrir hasarnum í Tom Clancy´s Rainbow Six: Vegas sem að eru góðar fréttir fyrir PSP. Leikurinn er mun hraðari en fyrirrennararnir en um leið ekki eins innihaldsríkur.
Helsti galli Tom Clancy´s Rainbow Six: Vegas á PSP er stjórnkerfið, PSP vélin hefur einfaldlega ekki nógu marga takka til þess að stjórna leiknum svo vel sé. Þetta gerir leikinn erfiðan í spilun og er mjög pirrandi.
Það er erfitt að mæla með Rainbow Six: Vegas fyrir PSP eigendur, leikurinn er einfaldlega ekki nógu góður og stjórnkerfið gengur endanlega frá málinu dauðu.

Grafík 3.5
Fín grafík en alls ekki með því besta sem hefur sést á PSP Leikjavélinni.

Hljóð 4.0
Mjög vel gert, flottir effektar, raddsetning og tónlist.

Tækni 2.0
Stjórnkerfið er ferlegt, helsti galli leiksins og gerir leikinn ill spilanlegann.

Leikhæfni og ending 2.5
Lítið kjöt á beinunum, stuttur og einhæfur.

Fyrir: PSP

Snorri Gunnarsson

Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is