leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



15/11/2007 | 00:00

Topp 5 Tölvuleikirnir: Jólin koma.....

Það er úr nógu að velja þegar kemur að tölvuleikjum þessi jól. Til þess að gera valið auðveldara tilnefnum við 5 toppleiki og 5 vonbrigði sem að prýða hillur verslanna nú um mundir. Valið var erfitt þegar að kom að topp 5 þar sem að gæðaleikir flykkjast í hillurnar um þessar mundir og margir tölvuleikir sem að gætu sómað sér vel á topp 5 listanum. Vonbrigðin hafa ekki verið svo mörg ef maður skilur frá leiki eins og Nascar, Deer Hunter og aðra þvælu sem að maður hafði engar væntingar til hvort eð er. Það tókst þó að finna til 5 leiki sem að hefðu átt að vera mikið betri heldur en þeir svo urðu.  5 vonbrigði birtast síðan í næstu viku.

Call of Duty 4: Modern Warfare

Mjög líklega leikur ársins, geðveikur einmenningsleikur og einn besti Netleikur síðustu ára. Allt virkar 100% og leikurinn rennur ljúft áfram á heimilistölvunni sem og á Leikjatölvunum. Einfaldlega leikur sem að allir með snefil af áhuga fyrir skotleikjum verða að eignast. 
Fyrir: PC, Xbox 360 og Playstation 3

Gears of War

Gears of War eru gamlar fréttir fyrir Xbox 360 eigendur, en fyrir Pésa og Makkafólk er Gears of War heitasta lumman í bænum. Pésa útgáfan er fáránlega flott, líklega með skemmtilegri skotleikjum á Pésanum í dag. Makkafólk fær svo sinn skammt heldur seinna, leikurinn spilast þó mjög vel í Bootcamp á nýlegum tölvum.
Fyrir: Xbox 360, PC – Væntanlegur fyrir Mac OS

The Witcher

Hlutverkaleikur án Netspilunnar? Já og virkar mjög vel, kosturinn er að leikurinn klárast, maður fær endi og ánægjuna af því að klára leikinn. Stóru hlutverkaleikirnir á Netinu eru flottir en endalausir sem að virkar ekki fyrir fólk sem að á sér líf í raunheimum. The Witcher bjargar málunum. Frábær leikur fyrir aðdáendur hlutverkaleikja.
Fyrir: PC

Pro Evolution Soccer 2008

Það þarf lítið að blaðra um ágæti Pro Evolution Soccer 2008, einfaldlega besti fótboltaleikurinn á þessu ári. Frábær grafík, flott leikhæfni og vélinn gengur áfram eins og ristað brauð á smjörfjalli.
Fyrir: PC, Wii, Xbox 360, Playstation 2, Playstation 3 og Nintendo DS

Guitar Hero III: Legends of Rock

Partý leikur ársins, þar sem tveir koma saman er gott að hafa Guitar Hero III: Legends of Rock svona til að losna við vandræðalegar þagnir. Hér eru hetjum rokksins gerð skil og spilarinn fær að troða puttunum á sér í stærstu sóló sögunnar.
Fyrir: PC, Wii, Xbox 360, Playstation 2, Playstation 3 og Mac(Intel)

Aðrir flottir: Crysis – Assassin´s Creed – Kane and Lynch – Uncharted: Drakes Fortune

Snorri Gunnarsson

Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is