leita

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



30/08/2007 | 00:00

Warhawk: Bara á Netinu

Það eru ekki margir leikir sem að bjóða bara upp á net-spilunar möguleikann. Flestir tölvuleikir hafa allaveganna hálfkaraða einmennings möguleika fyrir þá sem að eiga heima í afskekktum fjallaþorpum. Warhawk er ekki fyrir það fólk, hér er enginn einmenningsleikur og maður saknar þess ekki neitt. 32 spilarar geta spilað í hverju borði og hægt er að spila alla venjulegu net leikina. Leikurinn spilast mjög vel og tæknilega er hann skotheldur. Leikurinn spilast á jörðinni og í háloftunum. Spilarar geta hoppað um borð í flugvélar, þotur, skriðdreka, jeppa og allskyns önnur farartæki.

Grafíkin í Warhawk er mjög vel gerð. Borðin eru vel hönnuð til bardaga og allt umhverfi lítur vel út. Leikurinn er stílhreinn og grafíkin hrein og skörp. Farartækin eru mjög vel heppnuð, flott teiknuð og hönnuð.
Hljóðið bregst ekki hér, bardagahljóðin eru yfirþyrmandi og taugastrekkjandi eins og á við. Hægt er að tala við félagana og skipuleggja árásir, sá möguleiki er vel útfærður og einfaldur í notkun.

Tæknilega séð er Warhawk með flottari fjölspilunarleikjum á Netinu í dag. Hér rennur allt smurt, engir böggar sem að skemma fyrir. Auðvelt er að skella sér í farartækin og stjórnkerfið er mjög vel útfært. Hægt er að not Six Axis möguleikann á stýripinnanum sem að kemur sér oft vel þegar maður er að stjórna flugvélunum.
Það besta við Warhawk er hversu gott jafnvægi er á milli vopna og farartækja, það er ekkert eitt vopn eða farartæki miklu betra enn önnur. Þetta gerir það að verkum að bardagarnir eru jafnari og skemmtilegari.
Eini gallinn við Warhawk er að nýjir spilarar geta ekkert æft sig áður enn þeir hella sér á Netið, þannig að fyrstu bardagarnir hjá nýjum spilurum geta verið svolítið erfiðir. Ef að fólk þráast við kemur þetta allt að lokum og leikurinn opnast.
Það er ekkert mál að mæla með Warhawk fyrir PlayStation 3 eigendur, nánast skyldueign.

Grafík 4.5
Mjög flott, allt er vel teiknað og hönnunin á borðunum er einstaklega vel heppnuð. Sprengingar og bardagaskemmdir eru mjög vel gerðar.

Hljóð 4.5
Skothelt, raunverulegt og taugatrekkjandi. Bardagaglamrið bylur í eyrunum og rabbið í félögunum flýtur yfir.

Tækni 4.0
Ótrúlega gott jafnvægi á vopnum, ekkert eitt trikk sem að vinnur. Net spilunin án hnökra, tæknilega séð mjög vel gert.

Leikhæfni og ending 5.0
Ef að fólki líkar bardagar á Netinu þá eru hundruðir klukkustunda í hættu við að spila Warhawk.

Fyrir: Playstation 3

Snorri Gunnarsson


Share

22. nóvember 2007| Sex vonbrigði





04. október 2007| SEGA Rally: Hasar og læti



14. september 2007| Tekken: Dark Resurrection Online

30. ágúst 2007| Warhawk: Bara á Netinu






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is