leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



07/04/2008 | 22:57

Þegar Windows týndi netkortinu
Maður pirrar sig oft á því af hverju ýmsir hlutir í tölvutækninni eru svona eða hinsegin og finnst eins og hönnuðir hugbúnaðar séu ekki í sambandi þegar þeir þróa vöru sína. En það má samt ekki gleyma því að miklar framfarir hafa orðið síðustu ár.
 
Mér datt þetta í hug í síðustu viku þegar þráðlausa tengingin hvarf allt í einu af heimilistölvunni og á einhvern dularfullan hátt virtist sem tölvan neitaði því alfarið að hún væri með þráðlaust netkort. Eftir örlítinn barning mundi ég eftir System Recovery-tólinu í Windows og eftir að hafa skoðað það sá ég að Windows-uppfærsla hafði verið keyrð daginn áður en allt fór úr skorðum.
 
Það var þá líklegur sökudólgur og með einum músarsmelli í System Recovery var tölvunni skipað að hverfa aftur til þeirra stillinga sem hún hafði notað tveimur dögum áður og viti menn – þráðlausa netkortið kom aftur í leitirnar. Og þetta er ekki í fyrsta skiptið sem System Recovery bjargar tölvum hjá mér (og þar með geðheilsunni þann daginn). Gott dæmi um afar nytsamlegar framfarir í hugbúnaðarþróun.
 
Sjálfvirk vistun er snilld
Eins er frábært hversu hugbúnaður nú til dags fylgist með skjölunum sem verið er að vinna í og vistar aukaútgáfur ef ske kynni að forritið frjósi eða eitthvað bjáti á. Þannig hafa ómældar vinnustundir sparast hjá þeim sem eru ekki duglegir að vista skjölin sín reglulega – um leið og forritið er ræst aftur blasa við nýjustu útgáfurnar af skjölunum sem verið var að vinna í þegar forritið hrundi.
 
Og svona fyrst ég nefni það, þá varð náttúrlega ótrúleg framför með Windows XP-stýrikerfinu á sínum tíma hvað varðar stöðugleika stýrikerfisins. Eftir að Windows XP kom til skjalanna held ég að það sé teljandi á fingrum annarrar handar hve oft tölva sem ég er að nota hefur frosið algerlega þannig að nauðsynlegt sé að slökkva alveg á henni og kveikja aftur.
 
Bláskjár dauðans (hrollur...)
Vissulega eiga forrit það til að hrynja endrum og sinnum, en það hefur ekki lengur þau áhrif að tölvan gefist alveg upp og skelli fram hinum alræmda „Bláskjá dauðans“ sem allir sem notuðu tölvur á tíunda áratug síðustu aldar minnast með hryllingi. Maður var í rólegheitunum að dútla eitthvað í tölvunni (nú eða gera eitthvað afar mikilvægt, eins og að útrýma Stroggum í Quake) og svo BÚMM – allt varð blátt og engin leið að koma tölvunni í gang aftur nema með því að slökkva og kveikja (og tapa öllum gögnum).
 
Þetta virðist vera – Guði sé lof – liðin tíð að mestu sem er eitt dæmið um að þrátt fyrir ýmsa vankanta sem við þurfum að lifa við í tölvutækninni í dag þá er ýmislegt að verða betra – og sumt raunar miklu betra.
 
En það er enn langur vegur í að hlutirnir verði virkilega góðir. Hvernig stendur t.d. á því að hefðbundin Windows-uppfærsla leiðir til þess að tölvan týnir þráðlausa netkortinu?


Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims.

Share


09. september 2008| Google komið í vafrana

25. ágúst 2008| Stór bóla verður til

14. ágúst 2008| Skattkort á rafrænu formi?

30. júlí 2008| Tímanum sóað á Netinu?




06. júní 2008| Apple einokar topp 100


08. maí 2008| GTA slær sölumet

21. apríl 2008| Ný karfa fyrir eggin okkar


27. mars 2008| Af hverju fyrst núna?


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is