leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



27/03/2008 | 22:59

Af hverju fyrst núna?
Það gerist einstaka sinnum að ég sé nýja tækni sem gerir mig hreinlega pirraðan: Af hverju í andsk. var ekki búið að finna þetta upp þegar ÉG þurfti á því að halda?
 
Eitt slíkt tilfelli kom upp í vikunni þegar eiginkonan, sem hefur nýlega hafið framhaldsnám af miklum móð, montaði sig af hugbúnaði sem kallast Endnote. Það er víst búnaður sem hefur verið til um nokkurt skeið, en ég aldrei heyrt talað um enda nokkuð um liðið síðan ég lauk mínum menntaferli – í bili að minnsta kosti.
 
Heimildaskrárnar útbúnar fyrir mann
Endnote er sem sagt hugbúnaður sem sér um að setja upp heimildaskrár fyrir ritgerðir og lærðar greinar – verkefni sem allir sem gengið hafa menntaveginn þekkja og flestir – a.m.k. sem ég þekki – hugsa til með hryllings. Þær voru ófáar klukkustundirnar sem ég eyddi á sínum tíma við að raða upp endalausum listum af bókum og greinum eftir kúnstarinnar reglum þar sem passa þurfti upp á hvern punkt og kommu, sviga, uppröðun orða, skáletranir og þar fram eftir götunum.
 
En nú er sem sagt komið forrit sem gerir þetta allt saman fyrir mann! Í sumum tilvikum getur maður skellt greinum á Netinu beint inn í Endnote með einum smelli, í öðrum leitar forritið í gagnagrunni og finnur nauðsynlegar upplýsingar (svipað og tónlistarforrit geta sótt nöfn á flytjendum og lögum á Netið um leið og geisladiskur er settur í tölvuna) en ef þetta þrýtur slær maður upplýsingar um höfund, heiti, bindi, útgáfufyrirtæki og þess háttar inn í þar til gerða svarglugga í forritinu, sem sér svo um að raða upplýsingunum rétt upp. Og öllu er svo sjálfkrafa raðað upp í snyrtilega heimildaskrá eftir öllum ítrustu reglum þess tilvitnanakerfis sem nota á hverju sinni – því að sjálfsögðu er með einni skipun hægt að skipta milli tilvitnanakerfa eftir hentugleika
 
Einfaldara í dag en í gær
Þessi lýsing mín á Endnote er svo sem ekki tæmandi, því ég hef sjálfur ekki grúskað neitt í því – einungis horft bölvandi í huganum á eiginkonuna sýna mér helstu eiginleikana og monta sig yfir því að vera í háskólanámi án þess að þurfa að leggja teljandi vinnu í að setja upp heimildaskrár. Já, háskólanámið er ekki nærri því eins krefjandi í dag og það var áður fyrr...
 
Þessi litla saga sýnir manni annars hvernig litlar byltingar eiga sér stað úti um allt þjóðfélag með framförum í tölvutækninni. Á hverjum degi er ábyggilega einhver að kynnast nýrri tækni og upplifa þetta: „Vá, þetta er frábært – nú þarf ég ekki lengur að...“ Og bölva svo í hljóði yfir því að viðkomandi tækni hafi ekki löngu verið komin til sögunnar.


Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims.

Share


09. september 2008| Google komið í vafrana

25. ágúst 2008| Stór bóla verður til

14. ágúst 2008| Skattkort á rafrænu formi?

30. júlí 2008| Tímanum sóað á Netinu?




06. júní 2008| Apple einokar topp 100


08. maí 2008| GTA slær sölumet

21. apríl 2008| Ný karfa fyrir eggin okkar


27. mars 2008| Af hverju fyrst núna?


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is