leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



06/06/2008 | 00:44

Apple einokar topp 100
Ritstjórn PC World hefur gefið út sinn árlega lista yfir bestu vörurnar í tækniheiminum og þar er að vanda ýmislegt forvitnilegt. Sérstaklega vekja yfirburðir Apple athygli.
 
Þessi listi á sér langa sögu hjá PC World - allt aftur til byrjunar níunda áratugarins - og er því góð heimild um þróun tækninnar í gegnum tíðina. Síðustu árin hafa árlega verið valdar 100 tæknivörur, græjur, vélbúnaður, hugbúnaður og veftól, og þeim raðað upp í árslista. Svo má velta sér upp úr þessum árslista í leit að helstu „trendunum" í tækniheiminum.
 
Við skoðun listans að þessu sinni kemur í ljós að yfirburðir Apple eru orðnir næstum óhugnanlegir þegar kemur að þróun bestu tæknivaranna. Apple á hvorki meira né minna en tólf af 100 bestu vörunum - þeir framleiðendur sem eru í 2 - 3 sæti (Google og Microsoft) ná einungis fjórum vörum inn á listann.
 
Sex í fyrra, tólf í ár
Apple átti reyndar líka flestar vörur á listanum í fyrra - en þá voru þær „einungis" sex, þannig að yfirburðirnir fara hratt vaxandi. Og fjölbreytnin ræður ríkjum í þeim vörum sem Apple nær inn á listann - þarna eru símar, tölvur, skjáir og forrit, svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru sem sagt: iPhone (2), iPod Touch (13), Mac OS 10.5 Leopard (17), Apple HD Cinema Display (18), Safari (22), MacBook Pro Penryn (26), Final Cut Studio 2 (28), iChat (33), Logic Studio (66), Apple TV Take 2 (80) og MacBook Air (89). Og takið eftir að sjö af þessum vörum ná inn á topp 30! Það mætti halda að listinn væri saminn af ritstjórum Macworld en ekki PC World...
 
XP á fína endurkomu
Hins vegar ná tölvurisarnir tveir, Google og Microsoft einungis fjórum vörum inn hvor framleiðandi. Microsoft nær inn Windows XP (4), Xbox Live (12), Microsoft Tellme (63) og Office 2007 (83). Athygli vekur að Windows XP, tiltölulega gamalt stýrikerfi, komist inn á listann á meðan hið nýjasta, Windows Vista, er hvergi sjáanlegt. Það er væntanlega nokkur pólitík í því, þar sem Microsoft hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að ætla að hætta útgáfu Windows XP nú um mitt sumar þrátt fyrir að neytendur séu lítt hrifnir af því að skipta yfir í Windows Vista.
 
Google nær hins vegar hæst í 25. sæti með Google Maps, svo koma Google Docs & Spreadsheets (27), Gmail (41) og Youtube (81).
 
Hulu tekur toppsætið
Athygli vekur að fyrsta sæti listans hreppir að þessu sinni kvikmyndaveitan Hulu, þar sem hægt er að kaupa mikinn fjölda nýrra kvikmynda og sjónvarpsþátta og horfa á beint af Netinu. Samkvæmt ritstjórn PC World er þetta besta tilraun framleiðenda til að nýta Netið til dreifingar á myndefni hingað til og þar með besta leiðin til að berjast gegn ólöglegri dreifingu á efni. Eins og við mátti búast er Hulu hins vegar einskorðuð við Bandaríkin og því lítið á henni að græða hér heima.
 
Jafnframt er það tímanna tákn að fjölmargar vörur sem tengjast samfélagsvefjum komast inn á topp 100 að þessu sinni, enda eru samfélagsvefirnir nýjasta netbyltingin. Þarna má til að mynda sjá Facebook (3), Flock (6), Wikipedia (10), Scrabulous (15), Twitter (19), Flickr (30) og Yelp.com (46), svo eitthvað sé nefnt.
 
En sjón er sögu ríkari - lista PC World yfir 100 bestu vörurnar 2008 má finna í heild sinni með því að smella hér.


Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims.

Share


09. september 2008| Google komið í vafrana

25. ágúst 2008| Stór bóla verður til

14. ágúst 2008| Skattkort á rafrænu formi?

30. júlí 2008| Tímanum sóað á Netinu?




06. júní 2008| Apple einokar topp 100


08. maí 2008| GTA slær sölumet

21. apríl 2008| Ný karfa fyrir eggin okkar


27. mars 2008| Af hverju fyrst núna?


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is