leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



08/05/2008 | 23:56

GTA slær sölumet
Tölvuleikurinn Grand Theft Auto IV var gefinn út í síðustu viku og fór það tæpast fram hjá neinum sem fylgist eitthvað með þessum geira afþreyingariðnaðarins. Í gær voru svo gefnar út fyrstu sölutölur leiksins sem urðu þess valdandi að reyndustu markaðssérfræðinga sundlaði.
 
GTA IV reyndist hafa selst í yfir 6 milljónum eintaka á heimsvísu á fyrstu vikunni sem þýðir að hann halaði inn yfir 500 milljónir Bandaríkjadala, – u.þ.b. 39 milljarða króna. Hvorki meira né minna. Bara á fyrsta deginum seldust 3,6 milljónir eintaka.
 
Stærsta frumsýningarvika sögunnar
Þetta mun vera stærsta „frumsýningarvika“ sem um getur – ekki bara þegar kemur að tölvuleikjum, heldur hafa engar kvikmyndir eða hljómplötur náð inn viðlíka upphæð á fyrstu viku. Pirates of the Caribbean: Dead Man’s Chest og Spiderman 3 eru þær myndir sem hafa náð mestri innkomu á fyrstu viku – hvor skilaði framleiðendum ríflega 400 milljónum Bandaríkjadala eftir fyrstu sýningarviku.
 
Slíkar ofurupphæðir sýna enn og aftur það sem þeir sem hafa fylgst með tölvuleikjaheiminum og þróun tölvuleikja síðustu árin hafa löngum vitað – að þessi tegund afþreyingar er að verða ein sú umfangsmesta í afþreyingariðnaðinum. Sífellt fleiri hafa verið að átta sig á þessu, en það er ekki langt síðan margir héldu að tölvuleikir væru eitthvað sem einungis börn og unglingar stunduðu.
 
Aukin fjölbreytni í leikjaheiminum
Vissulega eru ungu karlmennirnir enn stærsti hópur spilara, eins og sjá má af vinsældum leikja á borð við Grand Theft Auto, sem ganga út á bófahasar og bílaeltingaleiki. En málið er hins vegar að flóra tölvuleikjaspilara er orðin mun fjölbreyttari en svo og hefur aldursdreifingin aukist auk þess sem konur spila tölvuleiki í meiri mæli. Þessi þróun hefur ekki síst orðið vegna þess að úrval leikja hefur margfaldast, þannig að nú geta flestir fundið tölvuleiki við sitt hæfi á meðan áhugasvið ungra karlmanna var nær einrátt á árum áður.
 
Þessi aukna fjölbreytni og hinn mikli vöxtur sem hefur einkennt tölvuleikjaiðnaðinn síðustu ár eru enn eitt dæmið um það hvernig tölvutæknin hefur gerbreytt heimsmyndinni. Ég er ekki viss um að margir hefðu trúað því þegar þeir spiluðu fyrsta Grand Theft Auto leikinn árið 1997 (sjá mynd) að ellefu árum síðar myndi sama tölvuleikjasería slá sjálfum kvikmyndaiðnaðinum við með jafn hressilegum hætti og nú er orðin raunin.
 
Og þegar maður skoðar hinn gríðarlega mun á upprunalega leiknum og þessum nýjasta – bara svona út frá tæknilegu og fagurfræðilegu sjónarhorni – þá er eiginlega ómögulegt að reyna að ímynda sér hvernig tölvuleikir muni líta út eftir 10 ár. Möguleikarnir eru nær óendanlegir.


Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims.

Share


09. september 2008| Google komið í vafrana

25. ágúst 2008| Stór bóla verður til

14. ágúst 2008| Skattkort á rafrænu formi?

30. júlí 2008| Tímanum sóað á Netinu?




06. júní 2008| Apple einokar topp 100


08. maí 2008| GTA slær sölumet

21. apríl 2008| Ný karfa fyrir eggin okkar


27. mars 2008| Af hverju fyrst núna?


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is