leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



18/06/2008 | 23:32

Hvernig tekst til með Firefox 3?
Ég verð að viðurkenna það: Nú, degi eftir að Firefox 3 kom út, hef ég ekki enn sótt þennan nýjasta vafra þeirra Mozilla-manna og lagði þar með heldur ekki mitt af mörkum í tilrauninni til að setja nýtt heimsmet í niðurhali.
 
Ég er samt alveg á leiðinni að fara að sækja Firefox 3 – enda getur enginn tölvunörd með sjálfsvirðingu látið marga daga líða frá því að nýjasti Firefox-inn kemur út þar til hann er sóttur og settur upp. Og það er full ástæða til ef marka má fullyrðingar talsmanna Mozilla, sem segja að Firefox 3 sé margfalt hraðvirkari heldur en Firefox 2, svo ekki sé minnst á Internet Explorer. Jafnframt hefur minnisnotkun vafrans verið stórbætt, þannig að hann tekur mun minna vinnsluminni heldur en fyrirrennarar og keppinautar, sem skiptir máli þegar kemur að heildarvinnslugetu tölvunnar.
 
Ekki bara undir vélarhlífinni
Framfarirnar eru ekki bara undir vélarhlífinni, því ný slóðarstika (þar sem vefslóðin er slegin inn) hefur hlotið mikla athygli og gengið svo vel í notendur að hún hefur verið kölluð „The Awesome bar.“ Helsta nýjungin er sú að þar er ekki einungis hægt að slá inn vefslóð, heldur geta notendur slegið inn ákveðin orð og þá birtir vafrinn tillögur að vefsíðum sem heimsóttar hafa verið áður og tengjast viðkomandi orðum. Þetta er sagt einfalda notendum verulega að finna aftur vefsíður sem þeir hafa heimsótt áður. Það verður athyglisvert að kynnast þessari nýjung af eigin raun og finna út hvort hún sé eins „awesome“ og af er látið.
 
Til viðbótar þessu koma svo ýmsir aðrir nýir þættir á borð við betri öryggiseiginleika þegar kemur að því að vara notandann við þegar reynt er að heimsækja hættulegar vefsíður, betri zoom-eiginleika og betri grafíkvinnslu við spilun myndskráa.
 
Góðar viðtökur
Það verður gaman að sjá hverjar viðtökur tölvunotenda um allan heim verða við nýjasta keppinauti Internet Explorer-vafrans frá Microsoft. Firefox hefur síðustu ár saxað jafnt og þétt á IE, sem var vel yfir 90% markinu í byrjun áratugarins. Nú er sú tala komin niður í tæp 75%, og Firefox hefur náð 18% hlutdeild skv. nýjustu markaðsrannsóknum.
 
Tilraun Mozilla til að setja heimsmet í niðurhali fyrsta daginn sem Firefox 3 var gefinn út virðist hafa gengið vel. Samkvæmt fyrstu tölum voru 8,2 milljónir eintaka sóttar á vef Mozilla fyrstu 24 klukkustundirnar, sem er langt umfram þær 1,6 milljónir eintaka sem sóttar voru af Firefox 2 þegar hann kom á markað á sínum tíma. Enn hefur þó ekki fengist staðfesting frá heimsmetabók Guinness á að þarna hafi verið slegið heimsmet. Svo á náttúrlega eftir að komast að því hvort þarna hafi nær einungis verið á ferðinni notendur Firefox 2, sem þýðir þá að lítið saxist á forskot IE til að byrja með, þrátt fyrir mikinn áhuga tölvunotenda.
 
Langhlaup, ekki sprettur
Fyrstu viðbrögð skipta heldur ekki öllu, því vafrastríðið hið nýja er náttúrlega ekki barátta sem vinnst á einu bretti, heldur er það langvarandi samkeppni sem ekki sér fyrir endann á. Og þar skiptir mestu að vera með vafra sem er betri en það sem fyrir er, þannig að sjálfir notendurnir séu himinlifandi og breiði út fagnaðarerindið.
 
Verð ég slíkur notandi? Veit það ekki enn. En ég er a.m.k. farinn á mozilla.com til að prófa þristinn.


Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims.

Share


09. september 2008| Google komið í vafrana

25. ágúst 2008| Stór bóla verður til

14. ágúst 2008| Skattkort á rafrænu formi?

30. júlí 2008| Tímanum sóað á Netinu?




06. júní 2008| Apple einokar topp 100


08. maí 2008| GTA slær sölumet

21. apríl 2008| Ný karfa fyrir eggin okkar


27. mars 2008| Af hverju fyrst núna?


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is