
Síðast nefndi ég þetta í pistli sem reyndar snerist að megninu til um Flickr, þegar ég óskaði þess að hugmyndir um uppbyggingu netþjónabúa myndu ekki gleymast eftir að umræða um ný álver var hafin af alvöru aftur eftir nokkuð hlé. Mér varð reyndar að ósk minni þá, því daginn eftir að pistillinn birtist kynnti fyrirtækið Verne Holding áætlanir um uppbyggingu gagnavers – sem reyndar er mun fallegra orð en netþjónabú og verður notað hér eftir af þeim sem þetta skrifar, að minnsta kosti.
Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims. EM> P>