
Þrátt fyrir að hafa fylgst grannt með netheimum í vel yfir áratug og stærstan hluta þess tíma haft atvinnu af því á einn eða annan hátt að þekkja ágætlega til á þeim vettvangi hef ég aldrei bloggað af neinu viti. Það breyttist í síðustu viku.
Að vísu tók ég fyrir nokkrum árum þátt í hópbloggi ásamt félögum mínum um nokkurt skeið, en það er á mörkunum að teljast með enda var það undir dulnefni og tiltölulega stopult. Þannig að ekki er ósanngjarnt að segja að ég hafi haldið mér á hliðarlínunni í bloggheimum hingað til, fylgst með af áhuga en aldrei tekið þátt í leiknum.
Vissulega hef ég hugsað um það reglulega hvort ekki sé kominn tími á að tjá sig í bloggheimum eins og allir hinir, en svo hafa líka komið þeir tímar sem ég hef einmitt verið ánægður með það að vera ekki að tjá mig í bloggheimum eins og allir hinir. Og svo hef ég prísað mig sælan að vera laus við að verja heilu kvöldstundunum í að blogga eða hafa stöðugt samviskubit yfir því hve lítið ég bloggaði.
Það nýjasta í samskiptum á Netinu
En svo kom að því að blaðran sprakk. Ég hef síðustu mánuði verið að vinna í því að stilla betur blogglesturinn minn, þannig að ég verji meiri tíma í að lesa blogg sem ég hef áhuga á en minni tíma í að eltast við eintóm leiðindi. Þar með hef ég rekist á fjöldann allan af áhugaverðum greinum sem fjalla um það nýjasta á Internetinu, almannatengsl og breytt samskiptamynstur fólks með tilkomu nýrrar tækni. Um leið áttaði ég mig á því að blogg um þetta efni á íslensku eða með íslenskum áherslum var af afar skornum skammti og því meira sem ég hugsaði um það, því meira langaði mig að fylla upp í það gat – eða a.m.k. gera heiðarlega tilraun til þess. Þessi tilraun er nú orðin að veruleika og kallast Stórabólan.net.
Hugmyndin er sú að þarna sé ekki einungis á ferð blogg sem er áhugavert fyrir þá sem vilja vita hvað sé á seyði á þessum vettvangi, heldur sé það líka tól fyrir mig þar sem ég held utan um það sem mér finnst hvað merkilegast á netheimum hverju sinni. Enda er það sennilega það sem er hvað mest heillandi við blogg almennt að það gagnast bæði sjálfum manni á sama hátt og hefðbundnar dagbækur hafa gert öldum saman, en einnig öðrum sem geta þá lesið dagbækur annarra sér til skemmtunar eða fræðslu. Og svo bætist auðvitað við möguleikinn á gagnvirkum samskiptum í gegnum athugasemdarkerfi ef vel tekst til og margir lesa.
Rennt blint í sjóinn
Þótt vissulega liggi ákveðin hugmyndavinna að baki Stóru bólunnar finnst mér ég auðvitað renna svolítið blint í sjóinn, enda erfitt að sjá fyrir hvernig til takist og ýmsir óvissuþættir, svo sem hve mikinn tíma maður getur gefið sér í bloggið, hversu vel takist til að finna áhugavert efni og skrifa eitthvað af viti um það – nú og svo auðvitað hversu margir hafi áhuga á þessum hlutum. En það er nú líka einn af helstu kostunum við bloggheiminn að það tekur ekki nema nokkrar mínútur að setja upp blogg og kostnaðurinn er takmarkaður – í versta falli nokkrir dollarar við að panta sitt eigið lén.
Umfjöllunarefni Stóru bólunnar skarast að einhverju leyti við pistlana sem ég hef skrifað hér síðustu misseri, en skiptingin er þó tiltölulega skýr - hér skrifa ég pistla sem snerta tölvur og tækniþróun almennt á meðan Stóra bólan leggur megináherslu á samskipti á Netinu, sem er mun afmarkaðri fókus. Það er þó aldrei að vita nema Stóra bólan og Tölvuheimur geti að einhverju leyti kallast á þegar umfjöllunarefnið skarast sem ætti jafnvel að geta aukið gildi beggja miðlanna. En það á allt eftir að koma í ljós – ég vona að minnsta kosti að lesendur pistlanna minna hér á Tölvuheimi muni leggja leið sína við og við á www.storabolan.net.
Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims. EM> Kristinn heldur úti blogginu Stóra bólan. P>