leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið



30/07/2008 | 00:23

Tímanum sóað á Netinu?

Oft heyrir maður talað þannig um tölvu- og netnotkun að látið er í veðri vaka að um tímasóun sé að ræða. Jú, vissulega er það í mörgum tilvikum réttlætanlegt, en þarf það endilega að vera að það sé svo tilgangslaust að „hanga“ í tölvunni?

Þessar vangaveltur eru vissulega mjög afstæðar – í samanburði við það að vinna sjálfboðavinnu hjá góðgerðarsamtökum telst lestur á bloggi vina og ættingja væntanlega frekar léleg nýting á frístundum. En um leið getur t.d. spilun nettölvuleiks við þúsundir spilara um allan heim með tilheyrandi samskiptum verið meira gefandi en að leggja kapal eða horfa á Jay Leno.

Að taka þátt í vefmiðluninni
Þetta eru kannski ekki miklar fréttir fyrir flest okkar sem hafa mikinn áhuga á tölvum, tækni og Netinu, en þeim sem lítinn áhuga hafa á þessum hlutum finnast þeir væntanlega afar fánýtir og óspennandi. En það sem er kannski hvað mest spennandi við þessar vangaveltur er að mögulega er tölvu- og nethangs að verða sífellt innihaldsríkara – eða öllu heldur fáum við sífellt fleiri og fjölbreyttari tækifæri til að gera eitthvað áhugavert og uppbyggjandi á Netinu.

Þróun síðustu missera á þessum vettvangi, þar sem sífellt koma fram nýjar leiðir til samskipta og tengslamyndunar, þýðir að Netið er að verða miklu gagnvirkara en það var – þ.e. að hinn almenni notandi getur tekið mun meiri þátt heldur en á fyrstu árum Netsins. Málið er nefnilega að þótt alltaf hafi verið talað um Netið sem gagnvirkan miðil gekk gagnvirknin fyrst um sinn mest út á að notandinn valdi hvert hann vafraði og hvenær – einungis þeir tæknisinnuðustu áttu hins vegar raunhæfan möguleika á að taka sjálfir þátt í vefmiðluninni.

Ekki bara þiggjendur  heldur gerendur
Nú geta hins vegar allir sem mús geta valdið opnað bloggsíðu á fimm mínútum, dælt fjölskyldumyndunum út á Netið, sett myndskeið inn á Youtube, sagt Agli Helgasyni álit sitt á skrifum hans um bankaútrásina, safnað saman vinum á Facebook, búið til útvarpsþátt og sent út sem Podcast, aðstoðað við smíði alfræðiorðabókarinnar Wikipedia og sett saman sína eigin fréttastofu með hjálp RSS-lesara. Gagnvirknin felst með öðrum orðum sífellt meira í að fólk sé að hafa áhrif á eða setja inn efni á Vefinn heldur en einungis neyta þess. Vefverjar eru að breytast úr því að vera að mestu leyti þiggjendur í að vera gerendur.

Þetta er stóra breytingin á Netinu og tölvunotkun sem gerir það að verkum að mínu mati a.m.k. að net„hangs“ getur hreinlega verið uppbyggilegt og mikilvægt fyrir fólk með frístundir. Hvort ætli sé meira gefandi að lesa blogg ættingja og skrifa þar inn athugasemd eða sitja fyrir framan sjónvarpið og horfa á America‘s Next Top Model?


Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims.

Share


09. september 2008| Google komið í vafrana

25. ágúst 2008| Stór bóla verður til

14. ágúst 2008| Skattkort á rafrænu formi?

30. júlí 2008| Tímanum sóað á Netinu?




06. júní 2008| Apple einokar topp 100


08. maí 2008| GTA slær sölumet

21. apríl 2008| Ný karfa fyrir eggin okkar


27. mars 2008| Af hverju fyrst núna?


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is