
Það sem er svo sérstakt við þessa auglýsingu er að hún er í raun einn stór gagnagrunnur um íslenska fótboltasumarið sem búið er að koma afar haganlega fyrir á litlu svæði. Í raun er auglýsingaborðinn örvefur út af fyrir sig, þar sem nálgast má m.a. öll úrslit úr deildunum tveimur, yfirlit yfir allar umferðir, markaskorara, stöðu í deild, helstu tölfræði og nöfn allra leikmanna liðanna. Og ekki er nóg með það, heldur má þarna horfa á fimm bestu mörkin í hverri umferð – í sjálfum auglýsingaborðanum!
Kristinn Jón Arnarson er almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum og fyrrverandi ritstjóri Tölvuheims. EM> P>