leita

 
 
Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og



12/09/2008 | 00:00

50 brellur til að fá öflugri forrit - 8
 
Með eftirfarandi 50 viðbótum, ráðum og brellum er hægt að gefa vafranum, Office-forritunum og margmiðlunarforritunum nýtt líf
 
 
Fimm lífsnauðsynlegar viðbætur fyrir margmiðlunarvinnsluna
 
1. Picasa to flickr  : Þessi viðbót fyrir Picasa er ókeypis, handhæg og óháð gerð tölvu og stýrikerfis. Það notar einfaldan Java-forritsbút til að þjappa skrár úr þessu vinsæla myndvinnsluforrit og senda þær beint í hina ekki síður vinsælu Flickr- vefþjónustu til að deila ljósmyndum.
 
 
2.The Filter  : Partýið byrjar eftir korter og það gleymdist að búa til lagalista til að láta ganga. Ekkert mál. Þessari iTunes  og Windows Media Player  viðbót er halað niður og slatti af lögum sett inn í hana. Á örskotsstundu býr viðbótin til lagalista og finnur jafnvel gleymda gullmola í lagasafninu.
 
3. EvilLyrics  : Þetta ókeypis niðurhal losar mann við ruslkóðann sem fylgir flestum leitarniðurstöðum með því að leita í bakgrunninum í hvert sinn sem lag er spilað í iTunes, WinAmp, Windows Media Player eða öðru forriti. Niðurstöðurnar eru ekki fullkomnar, en oftar réttar en ekki.
 
 
4. ffdshow  : Hægt er að losna við vesenið við a hringla með margskonar snið fyrir myndbandaskrár með því að nýta sér þessa fjölhæfu viðbót sem styður flesta myndbandsspilara og býður upp á alla víxlþjöppun (codec) fyrir myndbönd sem maður þarf á að halda.
 
 
5. Plugin Galaxy  : Þetta safn af ókeypis effektum og síum fyrir Photoshop og Paint Shop Pro býður upp á úrval ag bjögunar- og brenglunareffektum, auk handhægra möguleika eins og t.d. “page curl” þ.e. uppábrot á blaðsíðu til að setja inn á hornin á síðum. Allir effektarnir og möguleikarnir eru aðgengilegir í einu viðmóti.
Share

01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum

26. september 2008| Að nota sýndarvélar - 4

24. september 2008| Að nota sýndarvélar - 3

19. september 2008| Að nota sýndarvélar - 2

17. september 2008| Að nota sýndarvélar - 1











Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is