Þegar Windows hagar sér óeðlilega er hægt að keyra villugreiningartól eins og t.d. RegRepair frá EasyDesk (ókeypis til reynslu en kostar 2.100 vilji maður eiga það, find.pcworld.com/44052 ), nota System Restore til að fara aftur í tímann eða, ef allt bregst, setja stýrikerfið upp aftur frá grunni. En hvað
X-Men hafa ratað í tölvuleik áður og með nýrri kvikmynd kemur auðvitað nýr leikur. Í þetta skiptið er leikurinn þó auðsjáanlega unninn í miklum flýti til að mjólka vinsældir kvikmyndarinnar. Hann er hrár og grafíkin einföld og full af endurtekningum, augljós merki um hraða við vinnslu leiksins. Þetta er
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.
Um miðja síðustu öld sá ungur rafmagnsverkfræðingur fyrir sér að almenningur gæti óhindrað nálgast upplýsingar og haft samskipti sín á milli með tölvum. Fáir höfðu trú á hugmyndum hans.
Douglas Carl Engelbart hafði alltaf áhuga á framtíðinni. Í barnæsku reyndi hann ítrekað að búa til áætlanir