leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið


04/05/2006 | 00:00

Íslenskt birgðastjórnunarkerfi slær í gegn erlendis / 10/2005

AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun skrifstofu í Danmörku og Bretlandi.

AGR hefur einkum vakið athygli fyrir AGR Innkaup, innkaupa- og birgðastýringakerfi sem tengist upplýsinga- og viðskiptakerfum fyrirtækja. Kerfið les sölusögu og birtir ýmsar upplýsingar  á borð við sölusögu, birgðaþróun og spár með myndrænum hætti. Þá hefur AGR einnig hannað bestunarkerfi fyrir bílaleigur, dreifingu, fiskeldi, póstdreifingu, sjávarútveg o.fl. Þá hefur AGR einnig unnið að þróun framleiðslustýringarkerfis fyrir Actavis undanfarin tvö ár.
„AGR Innkaup hentar öllum fyrirtækjum sem stýra birgðum. Kerfið notar þekktar aðferðir birgðastjórnunar auk öflugra spáaðferða til að gera innkaupatillögur sem lágmarka bæði birgða- og flutningskostnað,“ segir Hálfdán Gunnarsson framkvæmdastjóri AGR. Hann segir að AGR Innkaup stuðli að lægri birgðahaldskostnaði, tryggi nákvæmari söluspár og hærra afhendingarhlutfall, stuðli að umtalsverðum vinnusparnaði og auknu öryggi í innkaupum.
„Við höfum selt kerfið víða hér á landi, eða til 27 fyrirtækja. Má þar nefna Baug og Húsasmiðjuna sem dæmi um viðskiptavini. Þá hefur kerfið vakið athygli erlendis en við höfum selt það til 6 fyrirtækja í Bretlandi, Hollandi og í Danmörku.“

Vöntun á kerfi fyrir smærri fyrirtæki
Hálfdán segir að mikil vöntun hafi verið á birgðastýringakerfum fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki hér á landi. „Það virðist hafa verið vöntun á slíkum kerfum en okkur tókst að koma til móts við þarfir margra fyrirtækja. Vitanlega geta viðskiptakerfi boðið upp á einfaldar „þumalputtaaðferðir“ fyrir birgðastýringu en AGR Innkaup er miklu þróaðra kerfi og hentar betur fyrir vöru- og birgðastýringu,“ segir Hálfdán.
Hann segir að helstu vaxtatækifæri fyrir AGR á þessu sviði séu erlendis enda sé fyrirtækið nú þegar búið að ná til sín stórum hluta af innlenda markaðnum. „Við erum búin að taka stóran hluta af markaðnum hér á landi og erum með stór fyrirtæki í viðskiptum. Vöxturinn er því að hægja á sér hér á landi en við erum enn að vinna að ýmsum verkefnum á þessu sviði og útvíkka lausnina. Íslenski markaðurinn er því mjög góður að því leyti; það er hægt að koma með nýjar lausnir og þróa þær áfram. Við eigum einnig marga viðskiptavini hérlendis sem taka vel í nýjar útfærslur á kerfum og nýjar lausnir.“

Dótturfyrirtæki í Danmörku og Bretlandi
AGR 
hyggst opna skrifstofu í Danmörku í byrjun næsta árs. „Í raun er um dótturfyrirtæki að ræða þar í landi. Við sjáum mikla möguleika í Danmörku og höfum nú þegar ráðið mann til þess að sinna verkefnum fyrir okkur þar. Við stefnum einnig að opnun skrifstofu í Bretlandi innan skamms. Líkt og hérlendis virðist lítið vera til af sambærilegum lausnum  fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki víða um heim. Það eru reyndar til stórar, dýrar og flóknar lausnirfrá SAP, Manugistics og i2 sem henta frekar mjög stórum fyrirtækjum. Við höfum örlítið þreifað á öðrum mörkuðum og náð að selja nokkur kerfi án mikillar fyrirhafnar og teljum okkur því eiga mikla möguleika erlendis þar sem markaðurinn er margfalt stærri en á Íslandi. Við erum því með mörg járn í eldinum og væntum þess að spennandi tímar séu í uppsiglingu hjá AGR.“

AGR
Stofnað árið 2000
Fjöldi starfsmanna: 8
Heimilisfang: Borgartún 37
Sími: 512 1000.
Vefur:
www.agr.is
Netfang: agr@agr.is

Share
















Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


    



© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is