
Dohop er einstök íslensk leitarvél sem er hönnuð til þess að leita að upplýsingum um flugáætlanir og verð fjölmargra flugfélaga. Ný útgáfa er væntanleg af Dohop sem gerir fólki mögulegt að leita að upplýsingum um flugáætlanir og verð nær allra flugfélaga á Netinu.
Frosti Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Dohop, segir að hugmyndin að Dohop hafi kviknað þegar hann var að ferðast frá Frakklandi í lok árs 2003 og fékk ekki nægilega góðar upplýsingar um samanburð á verði og flugáætlun lággjaldaflugfélaga. „Þrátt fyrir ítarlega leit fannst engin leitarvél sem veitti upplýsingar um flugáætlanir þeirra eða möguleg tengiflug.“
Lággjaldafélög standa utan við miðlæg bókunarkerfi
Frosti telur líklegt að lággjaldafélögin séu hátt í 70 talsins og hafi um 25% markaðshlutdeild í Evrópu og því mikilvægt fyrir ferðamenn að geta fundið allt framboð þeirra á einfaldan hátt. „Áður en lággjaldafélögin komu fram var hægt að fá upplýsingar um verð og flugáætlanir allra flugfélaga í gegnum fá miðlæg dreifingakerfi eins og Amadeus. Verðlagning flugmiða byggðist á flóknum reglum og það þurfti flókið kerfi til að halda utan um þetta. Þegar lággjaldafélögin komu fram með sín einföldu fargjöld gátu þau selt flug beint á eigin vefsíðum og sparað sér kostnað af miðlægum kerfum.“ Það vantaði því heildarmynd af flugframboðinu fyrir ferðafólk.
Frosti segist því hafa fengið hóp af forriturum með sér í lið til þess að hanna kerfi sem gæti birt heildarmyndina. „Við útveguðum tímatöflur lággjaldaflugfélaga og þróuðum leitartækni sem reiknar út bestu flugsamsetningar fyrir notendur og flettir upp verðinu. Fyrsta útgáfa leitarvélarinnar var formlega tekin í notkun í febrúar á þessu ári og hefur vaxið ásmegin eftir því sem á árið hefur liðið. Dohop hefur vakið talsverða athygli enda eina leitarvélin sem leysir þetta verkefni í dag.“
Um 70 flugfélög eru skráð í gagnagrunn leitarvélarinnar. Eins og aðrar leitarvélar fær Dohop tekjur af sölu auglýsinga.. „Þegar smellt er á hlekk frá viðkomandi flugfélagi fáum við nokkrar krónur í kassann,“ segir Frosti.
Ný og öflugri útgáfa
Stefnt er að því að taka nýja útgáfu Dohop í notkun á næstu vikum sem leitar ekki bara hjá lággjaldafélögum. Hún hefur að geyma flugáætlanir og upplýsingar allra flugfélaga sem er að finna á Netinu. „Nú er búið að safna öllum tímatöflum í eitt kerfi og búa til reikniverk og bestunarkerfi fyrir þær leiðir sem notandi er að leita eftir. Í fyrsta skipti verður því hægt að sjá upplýsingar frá öllum flugfélögum á öllum mörkuðum. Þegar við kynnum nýju útgáfuna til leiks verður hún fyrsta og eina leitarvélin sem nær til alls flugs í heiminum og við erum spenntir að sjá hverjar viðtökur notenda verða.“
Spurður hvað það þýði fyrir Dohop að geta boðið upplýsingar frá enn fleiri flugfélögum segir Frosti. „Áður gátum við leitað í fjórðungi af flugmarkaðinum en nú er heildarmyndin komin og þar með mun meiri líkur á að okkur takist að finna bestu leiðina fyrir notendur. Við vonum að notendur munum segja öðrum frá því að Dohop sé gagnlegt tæki. Þá gerum við okkur vonir um að aukið þjónustustig við flugfélög og auglýsendur skili okkur einnig auknum tekjum. Ef okkur tekst að afla nægilegra tekna er stefnan að þróa fleiri leitarvélar fyrir ferðafólk, m.a. hótelleitarvél.“
Styrkur Dohop
Frosti segist bjartsýnn á framhaldið enda hafi Dohop skapað sér ákveðna sérstöðu. „Keppinautar okkar, eins og kajak.com, spretta upp úr því umhverfi sem er í Bandaríkjunum og leggja höfuðáherslu á að þjóna sínum markaði. Þetta eru vel fjármögnuð félög með fjölda starfsmanna en leitartækni þeirra hefur til þessa miðast við að setja fram upplýsingar um hefðbundin flugfélög úr miðlægum bókunarkerfum fyrir Bandaríkjamenn. Dohop hefur hinsvegar sérhæft sig í að leita að flugi hjá lággjaldafélögum fyrir Evrópubúa og hefur líka þróað tækni sem getur sett saman bestu flugáætlanir með tengiflugum þar sem þess þarf við. Við einbeitum okkur að Evrópumarkaði og höfum hannað kerfið þannig að auðvelt sé að viðhalda því á mörgum tungumálum.“
Fyrirtæki: Dohop ehf
Stofnað: 2004
Fjöldi starfsmanna: 8, þar af 4 í fullu starfi
Aðsetur: Borgartún 37
www.dohop.com