leita

Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og


01. október 2008| Öryggisafrit af reklunum
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni. Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið


09/03/2006 | 00:00

Til móts við netvædda framtíð / 03/2005

Fyrirtækið Extrada hefur þróað hugbúnað, XTN Digital Services Hub, sem gefur efnisveitum framtíðarinnar möguleika á að miðla þjónustu af ólíkum toga til notenda um Netið.

Veruleg þróun á sér stað í framleiðslu nettengdra raftækja; hvort sem um er að ræða tæki á heimilum, í vinnu eða í farartækjum. Má þar nefna heimilis- eða afþreyingartæki eða síma sem hægt er að tengjast þráðlaust eða um vír. Gert er ráð fyrir því að sú þjónusta sem verði í boði með þessum hætti verði hýst í nokkurs konar framtíðarefnisveitum. Frá slíkri veitu yrði hægt að miðla þjónustu til neytenda um Netið með þátttöku ýmiss konar tækja. Extrada er eitt þeirra fyrirtækja sem bíður þess að fyrrnefnd framtíðarsýn verði að veruleika í daglegu lífi fólks en fyrirtækið hefur þróað hugbúnað, XTN Digital Services Hub, sem gerir efnisveitum mögulegt að miðla þjónustu um net til notenda svo þeir geti pantað, stjórnað eða átt samskipti við hvers kyns búnað. „Möguleikar til miðlunar á þjónustu um Netið vaxa hröðum skrefum og við höfum mikla trú á að stór vörumerki, fyrirtæki sem eiga margs konar þjónustu undir einni regnhlíf, eigi eftir að verða ráðandi í miðlun af þessu tagi. Má þar nefna orku- og fjarskiptafyrirtæki eða stórfyrirtæki á borð við Sony, Phillips og Virgin,“ segir Vilhjálmur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs Extrada.

Starfsstöðvar í þremur löndum
Extrada
var stofnað fyrir fimm árum en félagið er að mestu leyti í eigu Íslendinga. Móðurfélagið var upphaflega skráð í Bandaríkjunum en var flutt til Bretlands í byrjun ársins 2005. Graham Nicholls, framkvæmdastjóri Extrada, er með skrifstofu í Lundúnum. Þá er félagið með skrifstofu í Berlín í Þýskalandi. Markaðsstarf og sala á búnaðinum fer fram í þessum tveimur löndum en þróun og viðhald á sér stað hjá Extrada í Reykjavík. Þróun XTN Digital Services Hub tók eitt og hálft ár en fjórar útgáfur hugbúnaðarins hafa litið dagsins ljós. Hann er þróaður í C++ og C# fyrir Microsoft .Net. Viðfangsþjónn hugbúnaðarins er hannaður í C++ en viðmóts- og samskiptaþjónn hans er forritaður í C#.
Vilhjálmur segir að mikið vatn hafi runnið til sjávar frá því að Extrada hóf þróun á hugbúnaði sínum í ársbyrjun 2000, félagið hafi í raun verið á undan sinni samtíð í upphafi og ekki hafi niðursveifla í upplýsingatækniiðnaði 2000-2001 auðveldað reksturinn. „Við höfum hins vegar ávallt haft tekjur af verkefnum í gegnum árin og þau hafa dugað okkur ágætlega. Þá höfum við sýnt aðhald í rekstri og notið þess að eiga þolinmóða fjárfesta. Þar af leiðandi hefur okkur tekist að þróa vöru sem er orðin allvel þekkt á þessu sviði, sérstaklega í Evrópu. Markaðurinn hefur jafnframt tekið við sér að nýju og við erum því bjartsýnir á framhaldið.“

Samstarf við breska gasfélagið
Extrada
hefur ásamt viðskiptavinum sínum tekið þátt í fjölda tilraunaverkefna erlendis sem snúa að netvæðingu tækja á heimilum og víðar. Vilhjálmur nefnir að Extrada taki meðal annars þátt í viðamiklu verkefni sem nefnist The Application Home Initiative (TAHI) þar sem ýmiss konar þjónustu er miðlað frá einni miðlægri efnisveitu til heimila í Bretlandi. Verkefnið, sem raftækjaframleiðandinn Dyson, orkurisinn Centrica (sem á British Gas) og IBM koma að ásamt fleirum, hefur hlotið stuðning frá breska iðnaðarráðuneytinu. XTN Digital Services Hub hugbúnaðurinn er notaður sem nokkurs konar grunnur fyrir verkefnið en það snýr meðal annars að orkunotkun, fjarviðhaldi og eftirliti með heimilistækjum. Vilhjálmur nefnir í því sambandi að uppbygging á efnisveitum um Netið sé langt á veg komin erlendis. Hann bendir á Bretland sem dæmi en þar hyggst Centrica notfæra sér hugbúnað Extrada og bjóða viðskiptavinum vöktunarþjónustu á gashiturum. „Stefnt er að því að bjóða viðskiptavinum lítinn hlut, nokkurs konar mótald, sem tengist gashitara en tækið lætur vita hvort þörf sé á viðhaldi. Vonir standa til þess að þessi búnaður verði aðgengilegur fyrir neytendur í lok ársins.“

Framrás tölvuframleiðenda
Spurður
hver verði þróunin á næstu árum segist Vilhjálmur spá því að ráðandi staðlar á þessu sviði eigi eftir að koma til sögunnar og vonandi geti fyrirtæki komið sér saman um þá áður en langt um líður. „Ég tel að þegar fram líða stundir verði um að ræða tvo til þrjá staðla sem hægt verður að nota til þess að tengjast tækjum af ólíkum toga. Þá bind ég vonir við að stuðningur við þess konar staðla verði fljótlega kominn í flest raftæki.“
Hvað varðar slíka þróun hér á landi segir Vilhjálmur að Extrada hafi unnið skýrslu fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Þá hafi fjarskiptafyrirtækin sýnt þessu máli áhuga. „Við eigum væntanlega eftir að sjá hreyfingu í hugbúnaði sem byggir á veflausnum á næstu árum en þar sem þróunin er komin lengra á veg erlendis er margt sem bendir til þess að Íslendingar komi til með að fylgja á eftir.“

Nafn fyrirtækis: Extrada Ltd.
Stofnað: 2000
Starfsstöðvar: Lundúnir, Berlín og Reykjavík
Fjöldi starfsmanna: 8
Aðalsími: 550 4800
Tölvupóstur:
info@extrada.com
Netfang: www.extrada.com
Verkefni: www.theapplicationhome.com

Share
















Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


    



© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is