Reynir Lyngdal átti ágæta spretti í Okkar eigin Osló en herslumuninn vantaði á að myndin færi í hóp betri íslenskra gamanmynda. Frost er allt öðru vísi kvikmynd, spennumynd með hryllingsívafi sem gerist í kuldalegri náttúru á hálendi Íslands, mynd sem gerir út á að óhugnanleg atriði haldi áhorfandanum við efnið
Á laugardaginn vann ég einstök afrek. Gekk á tvö fjöll, fékk mér humar í hádeginu og svindlaði mér í fyrsta sinn inn á safn á eldri borgara afslætti. Þetta síðasta er að vísu ekki hárnákvæmt, en ég kem að því síðar.
Þetta byrjaði þannig að ég þurfti að