leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá
Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


AFÞREYING

Vísindaskáldsaga Jules Verne, Leyndardómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins. Þar finna þeir göng sem leiða þá inn í neðanjarðarheim. Eftir ævintýralegan leiðangur komast þeir aftur upp á yfirborð jarðar í gegnum eldgos á Stromboli-eyju á Ítalíu.

Texti: Hilmar Karlsson.

Brendan Fraser, Joss Hutcherson og Aníta Briem leika aðalhlutverkin í Journey to the Center of the Earth: 3D.

Fyrsta kvikmyndin eftir Leyndardómum Snæfellsjökuls var gerð 1959 og var hið enska heiti bókarinnar notað, Journey to the Center of the Earth, sem er þýðing á upprunalegu heiti bókarinnar, Le voyage au centre de la terre. Það eru aðeins við Íslendingar sem hafa troðið Snæfellsjökul inn í titilinn. Í myndinni var einn íslenskur leikari, Pétur Rögnvaldsson, frjálsíþróttamaður sem hafði hið rétta norræna útlit sem þurfti í hlutverk leiðsögumannsins Hans. Tók hann sér nafnið Peter Ronson. Ekki varð leikaraferill hans lengri. Þegar kom að frumsýningu myndarinnar var honum boðinn margra ára samningur sem hann hafnaði á þeim forsendum að honum þætti ekki gott að vera í sviðsljósinu. Ári síðar keppti hann á Olympíuleikunum í Róm í 110 metra grindahlaupi fyrir Íslands hönd. Pétur bjó það sem eftir var ævinnar í Kaliforníu, giftist bandarískri konu 1970 og lést þar í fyrra.

Fimm sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar sem nota skáldsögu Jules Verne sem grunn og eru tvær þeirra teiknimyndir. Ein sjónvarpssería var gerð og gekk hún í tvö ár, 1967–1969. Önnur kvikmyndin sem gerð er eftir Leyndardómum Snæfellsjökuls verður síðan frumsýnd í Bandaríkjunum um miðjan júlímánuð. Heitir hún Journey to the Center of the Earth: 3D og er hún í þrívídd, tækni sem sem er að skjóta aftur upp kollinum og þá helst í kvikmyndum þar sem vísindaskáldskapur er grunnurinn. Í myndinni er notast við allar þær tæknibrellur sem kvikmyndir bjóða upp á í dag og er leikstjóri myndarinnar, Eric Brevig, þekktur brellumeistari og hefur tvisvar verið tilnefndur til óskarsverðlaunanna á þessu sviði, var það fyrir Hook (1992) og Pearl Harbor (2002). Journey to the Center of the Earth: 3D er fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir.

Nútíminn kallar á nýjar áherslur og er sagan í myndinni nokkuð ólík bókinni þó að grunnurinn sé hinn sami. Í upphafi finna börn upprunalega handritið af  bók Jules Verne og uppgötva við lestur þess að Verne hafi sjálfur farið í ævintýraferðina niður í iðrum jarðar í gegnum Snæfellsjökul. Faðir eins ungmennisins er jarðfræðingur og það er ekki að sökum að spyrja að þeir feðgar taka sér ferð til Íslands með handritið sem leiðarvísi. Að hluta til er myndin tekin á Íslandi og þegar horft er á sýnishorn úr myndinni kemur kunnuglegt landslag fyrir sjónir.

Aftur er Íslendingur í stóru hlutverki í Leyndardómum Snæfellsjökuls og nú er það ein efnilegasta leikkona okkar, Aníta Briem, sem leikur stærsta kvenhlutverkið í myndinni. Helsti mótleikari hennar er Brendan Fraser, sem leikið hefur í mörgum stórmyndum en er þekktastur fyrir leik sinn í múmíumyndunum, en sú fjórða í röðinni, The Mummy: Tomb of the Dragon Empire verður frumsýnd í kjölfarið á Journey to the Center of the Earth: 3D eða 1. ágúst.

Ekki er hægt að segja að kvikmyndagerðir eftir Leyndardómum Snæfellsjökuls hafi skilið eftir sig stór spor í kvikmyndasögunni og óvíst að þessi útgáfa geri það, en ef vel hefur tekist til þá ætti  Journey to the Center of the Earth: 3D að vera góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

 




22. október 2007| Matt Damon

16. október 2007| James Bond og Jason Bourne

04. júní 2007| Forest Whitaker


28. febrúar 2007| Bestu bítlalögin


STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is