leita


LEIÐARI
19. maí 2008| Fjölmiðlaleikur
Allir fjölmiðlar eru undir áhrifum. Ritstjórar reyna að koma því efni til skila sem þeir telja að sé í samræmi við stefnu miðilsins. Það er nánast útilokað að fjölmiðlar séu ekki undir áhrifum af einhverju tagi. Jafnvel íþróttarásir eru ekki hlutlausar því að ákveðið er hvaða leikir skuli sýndir og þulir láta í ljós skoðun á leikjum og leikmönnum.


GREINAR
16. júní 2008| Lífið veitir innblástur
Gabríela Friðriksdóttir er í fremstu röð listamanna hér á landi og verk hennar hafa hlotið verðskuldaða athygli víða um heim. Hún hefur alla tíð haft þörf fyrir að tjá sig með teikningum og annarri listsköpun og kemur tjáningu sinni nú til skila í hinum ýmsu formum listar.


VIÐTÖL
Músíktilraunir voru fyrst haldnar í Tónabæ árið 1982. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og margar af vinsælustu hljómsveitum landsins hafa þreytt frumraun sína á því sviði. Það nægir að nefna Dúkkulísurnar, Greifana, Maus, Botnleðju, Mínus og nú síðast Jakobínarínu til að undirstrika hversu mikil áhrif Músíktilraunir hafa haft á tónlistarsmekk landans.


 FERÐALÖG
19. maí 2008| Austur frá

Texti og myndir: Páll Stefánsson.

Kyoto merkir höfuðborg á japönsku. Það fer vel á því; hún er fyrrverandi  höfuðborg Japans;  var það í tæpar ellefu aldir, eða frá árinu 794 til ársins 1868. Þá tók Tokyo við hlutverkinu sem höfuðborg þessa fallega lands í austri.

Kyoto er enn miðstöð menningar og mennta í Japan. Með bara 200 þúsund háskólastúdenta í borginni sjálfri. Og 48 milljónir ferðamanna, flesta innlenda, sem koma á ári hverju til að þefa af sögunni. Kyoto er mesta ferðamannaborg keisaraveldisins.

Buddamunkur fer með þulu.

Við Kinakaku-ji-hofið.

Kyoto er hluti af Stór-Osaka-svæðinu, en Osaka er megaborg með um 19 milljónir íbúa og telst sjötta stærsta borg veraldar. Og þarna í skjóli fjallgarðs er Kyoto, akkúrat í miðju Japans, með sína 1,5 milljónir íbúa, og rúmlega  tvö þúsund búdda- og shinto-hof.

Sautján þessara hofa eru á heimsminjaskrá UNESCO, þekktust þeirra eru Ryoan-ji, en þau eru kunn fyrir sína einstæðu steinagarða; gullnahofið Kinkaku-ji og loks Kiyomizu-dera, en það er byggt á súlum undir fjallshlíð.

Ungmeyjar bíða eftir vonbiðli við Kiyomizu-dera hofið.

Frá Saga-Arashiyma hverfinu.

Kyoto er ein af fáum borgum Japans sem skartar byggingum er reistar voru áður en seinni heimsstyrjöldin brast á. Bandamenn sýndu borginni miskunn, enda var engin hernaðarframleiðsla þar. Kyoto var og er menningarlegt hjarta Japans.

Það er ótrúlegt að skoða sig um í borginni. Inn á milli nútímalegra stórhýsa eru dásamleg hof, mörg hundruð ára gömul. Þar tekst þögnin á við skarkalann frá næsta horni. Þarna er líka fjöldinn allur af veitingastöðum með japanskan mat sem á engan sinn líka; hollur, bragðgóður, en fyrst og fremst fallegur. Verði ykkur að góðu.  

Frá Saga-Arashiyma hverfinu.

Kyoto er miðstöð menntunar í Japan.





01. apríl 2008| Vetur konungur

28. maí 2007| Sunnan við sólina

18. desember 2006| Margur er Kínverjinn


10. júlí 2006| Ævintýralandið Panama

06. júlí 2006| Í fótspor Davíðs skálds

06. júlí 2006| Á Kilimanjaro



STJÓRNMÁL
Þó nokkrum sinnum var reynt að ráða Hitler af dögum. En Charles de Gaulle var þó enn umsetnari af morðingjum. Talið er að gerðar hafi verið 31 tilraun til að ráða hann af dögum.


AFÞREYING
Vísinda- skáldsaga Jules Verne, Leyndar- dómar Snæfellsjökuls, er einhver vinsælasta og mest lesna skáldsaga í þessum flokki og nýtur enn mikill vinsælda þrátt fyrir að rúmlega 140 ár séu liðin frá því hún var gefin út. Í bókinni notar franski rithöfundurinn Jules Verne Snæfellsjökul sem inngang að iðrum jarðar og er fjallað um hóp vísindamanna sem fer ásamt leiðsögumanni frá Arnarstapa niður í gíg Jökulsins.


ÍÞRÓTTIR
Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í knattspyrnu og kennari við Háskólann í Reykjavík, á að baki langan íþróttaferil. Valsliðið hefur blómstrað undir hans stjórn. Þjálfun og kennsla fer vel saman að öllu leyti nema einu, aldrei er frí.





© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is