leita

 
 
Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og



08. ágúst 2007| Myndirnar í megrun
 
Hér koma nokkur ráð til að minnka stafrænu myndirnar til að auðveldara sé að senda þær í tölvupósti eða setja þær á Netið
 
Af hverju ætti maður að vilja minnka myndirnar? Jú mikil upplausn og margir megapixlar er svo sem ágætt í sjálfu sér en stundum getur það líka orðið óþarflega mikið.
 
Ef maður vill til dæmist setja inn myndir á heimasíðu eins og Flickr eða senda myndir í tölvupósti til vina og ættingja þá er 6 megapixla mynd sem er 3000 x 2000 á stærð bara einfaldlega allt of stór. Það er ekki líklegt til vinsælda að senda nokkrar slíkar myndir. Svona stórar skrár eiga það til að stífla tölvupóst og það getur tekið þó nokkurn tíma að sækja þær. Því er nauðsynlegt að minnka myndirnar niður í stærð sem er viðráðanleg þannig að hægt sé að dreifa þeim til ættingja og vina án þess að valda leiðindum.
 
Myndirnar minnkaðar
 
Áður en við hefjumst handa ætti ég að benda á að sumar stafrænar myndavélar búa yfir möguleikanum á að breyta stærð mynda jafnvel áður en þær eru fluttar yfir í tölvuna. Það getur því verið ráð að skoða handbókina sem fylgdi með myndavélinni og athuga hvort til sé leið til að búa sjálfvirkt til annað afrit af myndum í stærð sem hentar betur til sendinga í tölvupósti meðan myndirnar eru enn á minniskortin í vélinni. Þá er hægt að sleppa við að minnka myndirnar þegar verið er að senda þær eða setja á Netið.
 
Hvað á svo að smækka myndirnar mikið? Ég legg til að myndir sem eiga að fara á Netið og senda í tölvupósti séu minnkaðar þannig að mesta stærðin – á lengd eða breytt, eftir því hvernig hún snýr, sé ekki meiri en 800 pixlar. Hér á eftir verður útskýrt hvernig þetta er gert í í Photoshop Elements myndvinnsluforritinu frá Adobe.
 
Þrátt fyrir að þessar leiðbeiningar eigi við um Photoshop Elements þá er hægt að nota aðferðina í nánast hvaða forriti sem er, en þar sem svo margir nota þetta forrit er best að nota það til að sýna hvernig farið er að.
 
Photoshop forritið er ræst og skráin sem á að minnka er valin. Síðan er Image>Resize>Image Size valið.
 
Vegna þess að ætlunin er að láta myndina vera í tiltekinni pixlastærð verður að ganga úr skugga um að Pixels sé valið hægra megin í svarglugganum. Einnig er hægt að breyta myndinni í samræmi við prósentur af upprunalegu stærðinni en við skulum láta það eiga sig í bili.
 
Nauðsynlegt er að hakað sé við Constrain Proportions því þá haldast hlutföll myndarinnar óbreytt og hún verður ekki samanþjöppuð eða teygð. Einnig þarf að haka við Resample Image og að stillt sé á Bicubic. Ef það er gert verður útkoman vanalega best.
 
Að lokum eru stærðirnar fyrir myndina slegin inn. Einungis er nauðsynlegt að slá inn hæð eða breidd því stærðarhlutföll myndarinnar breytast ekki. Photoshop Elements setur sjálfkrafa inn hina töluna. Síðan er smellt á OK til að stærðin breytist.
 
Myndin á skjánum ætti að sjást minnka. Ef smellt er á Save now er smækkaða myndin vistuð yfir upprunalegu myndina. Í stað þess að gera það sting ég upp á að hún sé vistuð sem ný skrá til að myndin í upprunalegu stærðinni glatist ekki. Smellt er á File>Save As og síðan er myndinni gefið nýtt heiti.
 
Sjálfvirk minnkun Windows
 
Það er til önnur leið til að minnka myndirnar sem er sérstaklega hentug ef ætlunin er að senda minnkuðu myndirnar í tölvupósti. Myndirnar eru einfaldlega valdar, hægrismellt á þær og Send To Mail Recipient valið. Windows birtir þá Attach Files svargluggann þar sem hægt er að velja nýju stærðina (ég mæli með Medium eða Large).
 
Þegar þessu er lokið setur Windows nýja, minnkuðu myndirnar sjálfvirkt í viðhengi með tölvupósti.




27. júlí 2006| Ókeypis samskeytingarforrit

25. júlí 2006| Ljósmyndir af myndbandi





Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is