leita

 
 
Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og



 
Eftirfarandi niðurhöl, sem flest eru ókeypis bæta samskiptin á Netinu, auka öryggið og gera lífið í Netheiminum betra á allan hátt.
 
Öryggistól
 
Á Netinu er nauðsynlegt að hafa öryggismálin í lagi. Ef eftirfarandi forritum er halað niður er maður á góðri leið til að verja sig fyrir vondu köllunum og slæmum hugbúnaði.
 
 
Comodo Firewall Pro
 
Þeir sem nota eldvegginn sem fylgir með Windows XP eða Vista eru ekki nægilega varðir. Þeir bjóða ekki upp á stillanlega vörn á umferð frá tölvunni - sem er mikilvægt þegar njósnahugbúnaður er annars vegar. Þessi óleypis eldveggur stoppar ekki bara ógn sem reynir að lauma sér inn í tölvuna og að óæskileg forrit hafi samband út á Netið úr tölvunni, heldur getur hann einnig varið skrár og möppur sem valdar eru sérstaklega, þannig að spilliforrit geti ekki komist í þær eða breytt þeim.
 
Það þarf að gera ráð fyrir smá tíma fyrst þegar forritið er notað til að þjálfa það. Í hvert sinn sem forrit vill fá aðgang að Netinu birtir Comodo pop-up glugga og spyr hvort leyfa eigi því forriti að fara út á Netið. Til að fækka þessum gluggum er best að keyra forritið í Clean PC stillingunni, en þá er tölvan skönnuð og forritin sem þá eru í tölvunni fundin og skráð sem örugg. Til að vera viss um að Comodo trufli ekki uppsetningu á forritum er hægt að nota það í uppsetningarstillingunni Installation mode, en þá eru vissir pop-up gluggar gerðir óvirkir í 15 mínútur til að maður fái svigrúm til að setja upp forrit án þess að vera truflaður af pop-up gluggum frá Comodo.
 
 
Hægt er að hala Comodo Firewall Pro niður ókeypis hér  
 
Ad-Aware
 
Þegar Netið er notað verður tölvan skotmark njósna- og auglýsingahugbúnaðar, Trójuhesta og annarra spilliforrita. Veiruvörnin ein og sér dugir ekki til að verja hana vegna þess að hún nær ekki að fanga mörg þessara spilliforrita. Hið gamalgróna og sívinsæla Ad-Aware veitir ókeypis varnarskjöld gegn óværunni.
 
Þetta er öflugt til að skanna tölvuna og athuga hvort óværa hafi læðst inn – þ.m.t. Trójuhestar, rootkit-veirur og annar njósnabúnaður – og gefur aðvörun um að það hafi fundið eitthvað misjafnt og eyðir því síðan. Það getur einnig sett óværuna í sóttkví, þ.e. gert hana óvirka en ekki eytt henni – þannig að þá er hægt að ákveða síðar hvað á að gera við vandræðagemlingana.
 
Þó svo að njósnavarnabúnaður sé þegar í tölvunni er það góð hugmynd að nota líka Ad-Aware, vegna þess að ekki finna öll njósnavarnaforrit allar ógnir, þannig að það getur verið sniðugt að nota fleiri en eitt tól.
 
Hægt er að hala Ad-Aware niður ókeypis hér  
 
Free Internet Window Washer
 
Allt sem gert er á Netinu skilur eftir sig ummerki - og það er auðveldara að rekja þau en margan grunar. Meðal þessara ummerkja eru skrár sem vistaðar eru í biðminni, vafrasögunni, upplýsingar sem fylltar eru út sjálfvirkt (auto-complete), vafrakökur, vefslóðir sem hafa verið slegnar inn o.fl. Þetta þýðir að allir sem fá að nota tölvuna geta auðveldlega séð hvað maður hefur aðhafst á Netinu. Í sumum tilvikum er jafnvel hægt að nota vefsíður til að safna upplýsingum um hvaða síður hafa verið skoðaðar og hvað hefur verið gert á Netinu.
 
Free Internet Window Washer stendur vörð um einkalífið með því að afmá öll þessi ummerki og meira til úr tölvunni. Það hreinsar ekki einungis til í því sem hefur verið aðhafst á Netinu heldur hreinsar einnig ummerki um notkun á forritum, t.d. hvaða skrár hafa nýlega verið opnaðar í Office-forritum. Tólið virkar með mörgum vöfrum, þar á meðal Internet Explorer, Firefox, Netscape og Opera.
 
 
Hægt er að hala Free Internet Window Washer niður ókeypis hér 

















Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is