leita

 
 
Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og



 
Flestar árásir á tölvuna beinast að nokkrum veikum blettum sem ekki er erfitt að verja. Ef eftirfarandi ráðum er fylgt ætti tölvan er töluvert öruggari á eftir.
 
Viðgerð nr. 9 Öruggari leyniorð sem líka er auðvelt að muna
 
Leyniorðin sem notuð eru á Netinu virðast ekki vera lengur nein fyrirstaða fyrir þá sem vilja komast í persónulegu upplýsingarnar. Framboðið á stolnum leyniorðum er orðið svo mikið að þrjótarnir græða ekkert lengur á þeim nema viðbótarupplýsingar eins og netföng, heimilisföng, kennitölur og fleira fylgi með í kaupbætið. Þjófarnir láta sér ekki nægja að stela aðgangs- og lykilorðum inn á heimabanka og aðrar fjármálasíður – heldur líka innskráningarupplýsingar í netpóstinn. Nýlega var brotist inn í netpóst og síðan var sendur póstur þar sem sendur var póstur í nafni viðkomandi þar sem hann bað vini sína um peninga.
 
Sérfræðingarnir hamra alltaf á því að það eigi að nota örugg leyniorð og ekki nota sama leyniorðið tvisvar. En þeir gleyma að segja manni hvernig í ósköpunum maður eig að muna öll leyniorðin, þannig að flestir halda áfram að nota sama leyniorðið inn á allar síður.
 
Hér kemur smá brella sem gerir kleift að muna bara eitt lykilorð en hafa samt örugg og mismunandi leyniorð fyrir hverja síðu. Password Hash (Ieða PwdHash) viðbótin fyrir Firefox og IE tekur einfalda leyniorðið sem slegið er inn og keyrir það í gegnum algóritma sem notar lénsheiti síðunnar sem hluta af útreikningunum. Tólið setur síðan öfluga leyniorðið sem það smíðaði í réttan reit og svo er ýtt á Enter. Það eina sem þarf að gera (eftir að búið er að setja Password Hash upp) er að styðja á F2 hnappinn þegar bendillinn er staðsettur í leyniorðsreitnum áður en leyniorðið er slegið inn.
 
Á niðurhalssíðu PCWorld  er að finna hlekki til að hala tólinu niður og fé frekari upplýsingar
 
 
Viðgerð nr. 10 Viðbótarhjálp til að berjast við þrautseigar sýkingar
 
Stundum hleypir jafnvel besta veiruvörnin óværu fram hjá sér og þegar veira eða Trójuhestur eru komin inn fyrir varnirnar getur verið ótrúlega erfitt að losa sig við þau. Ef grunur leikur á að eitthvað óæskilegt hafi tekið sér bólfestu í tölvunni getur stundum verið nauðsynlegt að fá utanaðkomandi hjálp.
 
Margir höfundar veiruvarnartóla bjóða upp á ókeypis skönnun á Netinu með hjálp vafra. Þessi skönnun tekur hins vegar nokkurn tíma því skönnunarþjónustan þarf að hala niður stórum Java eða ActiveX hlutum áður en hún getur hafist handa, en það er auðvelt að koma þeim af stað. Hægt er að keyra þessa skönnnun til viðbótar við veiruvörnina sem fyrir er til að fá annað (eða þriðja og ef til vill fjórða) álit. Svona er farið að:
 
 
Trend Micro HouseCall : Finnur og fjarlægir spilliforrit og virkar bæði í IE og Firefox.
 
BitDefender Online Scanner : Finnur og fjarlægir spilliforrit, nauðsynlegt að vera með IE.
 
Kaspersky Online Scanner : Finnur spilliforrit en fjarlægir þau ekki, virkar bæði í IE og Firefox.
 
F-Secure Online Virus Scanner : Finnur og fjarlægir spilliforrit, nauðsynlegt að vera með IE.
 
ESET Online Scanner : Finnur og fjarlægir spilliforrit, nauðsynlegt að vera með IE.











25. maí 2007| Veira eða ekki veira ?






Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is