Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og
Með því að setja nýtt skjákort í tölvuna er hægt að bæta myndvinnsluna í leikjum og hraðann í Vista
Ef leikirnir, myndvinnslan og önnur margmiðlun á að verða hraðvirkari er forgangsatriði að fá sér nýtt og öflugra skjákort. Nýja Aero þrívíddarviðmótið í Vista gefur manni einnig ástæðu til að uppfæra. Til að keyra Aero verður myndvinnsluörflagan að styðja DirectX-9 tækninaog einnig verða 128 MB af sérnota minni til myndvinnslu að vera til staðar.
Hvernig skjákort er best að kaupa ?
Ef ætlunin er spila nýjustu leikina borgar sig að kaupa eins gott kort og maður hefur efni á. Forfallnir spilarar með nóg af peningum fá sér væntanleg tvöfalt skjákort, annað hvort með SLI tækninni frá NVidia eða Crossfire tækninni frá ATI og geta vænst þess að þurfa að punga út stórum fjárhæðum, bæði fyrir skjákortin og nýju SLI- eða Crossfire samhæfu móðurborði.
Þeir sem eru fastheldnari á budduna þurfa ekki að eyða stórum fjárhæðum til þess að bæta myndvinnsluna. Jafnvel miðlungsdýr skjákort gæta bætt afköstin verulega í samanburði við eldri skjákort - sérstakleg ef verið er að setja kort í ódýrari gerð af tölvu þar sem skjákortið er innbyggt í móðurborðið. Frekari ráð um hvað þurfi að hafa í huga við skjákortakaup er að finna hér.
Hægt er að skoða topp 5 listann á heimasíðu PCWorld yfir bestu kostina og er flokkað í þrennt eftir verði og afköstum:
Það er nauðsynlegt að vita hvaða gerð af skjákorti virkar í tölvunni áður en lagt er af stað í verslunarleiðangur. Það er hægt að kreista smá aukavinnslu úr eldri tölvum með AGP-tengjum en í langflestum tilvikum verða tölvur sem eitthvað vit er að uppfæra að vera með PCI Express x16 rauf fyrir skjákortið
Mörg af öflugri skjákortum sem eru í boði í dag tengjast beint í aflgjafann. Tryggja verður að nauðsynleg tengi og millistykki séu til staðar áður en farið er út í uppfærslu. Einnig þarf að athuga hvort aflgjafinn í tölvunni hafi yfir nægilega mörgum vöttum að ráða til að ráða við nýja kortið, því sum af öflugri kortum sem fást nú orðið þurfa vel yfir 100 vött. Ofhitnun er einnig vandamál þegar út í öflugri kort er komið þannig að þá þarf einnig að huga að kælingunni og einnig þarf nægilegt rými innan í tölvukassanum. Kælikerfið á öflugum skjákortum tekur vanalega pláss sem svarar tveimur viðbótarraufum.
Ef verið er að bæta nýju korti í ódýra tölvu með skjákorti sem er innbyggt í móðurborðið og einkum ef tölvan notar vinnsluminnið bæði fyrir myndvinnsluna og aðra vinnslu verður að kíkja í handbók tölvunnar eða hjálparsíðu framleiðandans til að vera viss um að tölvan ráði við að fá nýja skjákortið.
Hvað þarf til að setja skjákortið í ?
Verkfæri: Auk skjákortsins þarf lítið stjörnuskrúfjárn sem ekki er með segulstáli og einfalt afrafmagnandi armband. Hægt er að fá svoleiðis armaband í næstu tölvuvöruverslun fyrir lítinn pening.
Reklar: Best er að hafa geisladiskinn með reklinum og uppsetningarhugbúnaðinum tiltkækan. Það er góð regla að hala niður nýjustu útgáfu rekilsins fyrir skjákortið af heimasíðu framleiðandans. Það er nánast venja að skjákortum fylgir ekki besti og nýjasti rekillinn sem völ er á.
Hvernig á að setja upp skjákortið ?
1. Gömlu reklarnir fjarlægðir: Byrjað er á því að fjarlægja reklana fyrir gamla kortið í Windows.Hægrismellt er á My Computer og Properties valið og á Hardware flipanum er smellt á Device Manager. Tvísmellt er á heiti skjákortstins sem fyrir er og tilgreint er í Display Adapter og á Driver flipanum er smellt á Uninstall hnappinn, sjá skjámynd. Þegar þessu er lokið er öllum öðrum hugbúnaði sem notaður er til að stýra kortinu með því að keyra Add or Remove Programs tólið í Control Panel (maður kemst í það í gegnum ræsivallistann). Þessi forrit eru vanalega tilgreind sem ATI, NVIDIA eða sem tegundarheiti skjákortsins. Slökkt er á tölvunni þegar búið er að fjarlægja hugbúnaðinn.
2. Kassinn opnaður: Tölvan er tekin úr sambandi og henni komið þannig fyrir að auðvelt er að ná til hlutanna inni í kassanum. Ef um er að ræða turnkassa er auðveldara að setja upp skjákortið ef kassinn liggur á hlið. Hlífin er síðan tekin af kassanum.
3. Jarðsamband: Nauðsynlegt er að vernda viðkvæmar rafrásir tölvunnar fyrir stöðurafmagni frá líkamanum með því að fá jarðsamband. Ef ekkert afrafmagnandi armband er til staðar þarf a.m.k. að fá jarðsamband með þvi að halda í krana í vaskinum, rör eða jafnvel getur verið nóg að snerta málmhlut í hlíf tölvunnar áður en farið er að snerta einhverja íhluti innan í kassanum.
4. Gamla skjákortið fjarlægt: Byrjað er á því að losa skrúfurnar sem festa kortið við burðargrind tölvunnar. Síðan er kortið tekið úr með því að taka í hliðar þess og draga það upp með jöfnu átaki og opnu um leið klemmuna á enda kortaraufarinnar. Ef kortið virðist vera fast er hægt að rugga því til eftir lengdinni.
5. Nýja kortið sett í: Nýja kortið er tekið úr pakkningunni. Forðast skal að koma við kubbanna eða rásirnar á yfirborði kortsins, best er að halda einungis um brúnirnar. Tengið á kortinu er sett upp að viðbótarraufinn og síðan er þrýst þéttingsfast á efri brún kortsins þar til kortið er fast á sínum stað. Kortið er síðan fest við burðargrindina með skrúfunum sem voru losaðar eða annars konar festingum. Síðan er rafmagnssnúran tengd í aflgjafann ef það er nauðsynlegt.
6. Nýji rekillinn settur upp: Tölvukassinn er settur saman aftur, tölvan sett í samband og ræst og rekillinn fyrir nýja skjákortið er settur upp. Smellt er á Cancel til að hunsa hjálparálfinn fyrir Windows-uppsetninguna. Síðan er uppsetingarforritið sem fylgdi með skjákortinu keyrt.
Ef maður er einungis með rekilinn en ekkert uppsetningarforrit er hægt að setja kortið upp handvirkt með því að velja Add Hardware í Control Panel. Forritið leiðbeinir manni í gegnum uppsetningarferlið og spyr um staðsetningu reklaskránna, sem er annað hvort á geisladiskinum eða harða diskinum,ef skránum var halað niður.
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð.
Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun