Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og
Lesandi hafði samband og vildi fá að vita hvernig hægt væri að geyma reklana á öruggum staðar áður en farið væri í allsherjar enduruppsetningu á tölvunni.
Til að byrja með er nauðsynlegt að vita að ekkert er algjörleg öruggt í þessum efnum. Ég hef enn ekki fundið aðferð til að afrita hverja einustu skrá sem hver einasti rekill kann að þurfa á að halda. En það er hægt að mæla með tveimur aðferðum, en með báðum er hægt að ná langstærstum hluta skránna og mjög líklega öllum. Til að vera með allt á hreinu getur verið sniðugt að nota báðar aðferðirnar.
Fyrri aðferðin felst í að nota driverback.bat skrána sem er runuskrá sem búin var til árið 2005 þegar þessi spurning kom síðast upp (ef tengillinn opnar vefsíðu með texta í stað svarglugga til að hala niður skrá er textinn afritaður yfir í Notepad og vistaður Sem driverback.bat). Með þessari skrá er öryggisafritun reklanna einstaklega einföld og tiltölulega einfalt að setja þá upp aftur, þó svo að afritaðar séu mun fleiri skrá en líklega er þörf á. Annað vandamál er að skráin virkar ekki í Vista – sem einnig er ástæða fyrir því að hér eru tilgreindar tvær aðferðir.
Þegar þessi runuskrá er keyrð eru margar skrár afritaðar yfir í möppu í My Documents sem heitir drverback. Þessa möppu á að afrita yfir á utanáliggjandi drif eða brenna á geisladisk til að eiga öruggt geymsluafrit.
Til að endurheimta reklana þegar búið er að setja XP upp á nýtt, er drifið eða geisladiskurinn með driverbackup möppunni settir í samband við tölvuna. Síðan er Start>Run valið og sysdm.cpl slegið inn og stutt á ENTER. Smellt er á Hardware flipann og síðan á Device Manager hnappinn.
Eftirfarandi atriði eru endurtekin fyrir hvern hlut sem merktur er með gulu spurningarmerki:
1. Hægrismellt er á atriðið og Update Driver valið.
2. Í Hardware Update hjálparálfinum sem þá birtist er Install from a list or specific location (Advanced) valið og smellt á Next.
3. Hakað er við Include this location in the search og síða er farið í driverback möppuna. Síðan er smellt á Next.
4. Ef uppsetningin stöðvast vegna þess að skrá finnst ekki er best að leita að skránni í driverback möppunni.
Þeir sem eru með Vista uppsett eða vilja eiga tvö afrit ættu ekki að treysta á þessu runuskrá sem vissulega er nokkuð hrá heldur prófa ókeypis DriverMax forritið frá Innovative Solutions. (Það er vissulega ókeypis en það er nauðsynlegt að skrá sig ef maður vill eiga það áfram.)
Þegar búið er að setj aþað upp og skrá afritar það og endurheimtir rekla án vandræða.
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð.
Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun