leita

 
 
Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og



 
Passað upp á gögnin
 
Með minniskubb á lyklakippunni og smá fyrirhyggju er mögulegt að vera með tölvuna ásamt persónulegu stillingunum hvert sem maður fer og losna við að dragnast með fartölvuna með sér.
 
Hvort heldur sem vinnuskrárnar eru meðferðis á minniskubbnum eða vistaðar á netinu verður að gera ráðstafanir til að verja þessar skrár, huga að persónuvernd og einnig að verja tölvurnar sem notaðar eru hvort heldur sem sem er fyrir óværu sem ratar þangað í ógáti en einnig fyrir illskeyttum árásum. Hér koma nokkur atriði sem nauðsynlegt er að hafa í huga.
 
Skannað til öryggis. Þar sem maður er að nota USB-minniskubb á ókunnugri tölvu er kubburinn í meiri hætti. Það borgar sig því að vera með veiruvörn og njósnabana í farforritaúrvalinu á kubbnum. Viðbótar varrúðarráðstöfun er að skanna kubbinn og geira veiru og njósnaforritaleit þegar aftur er farið að vinna í heimatölvunni til að ganga úr skugga um að kubburinn hafi ekki nælt sér í eitthvað á ferðalaginu.
 
Heilbrigð skynsemi: Það er aldrei 100% öruggt að nota tölvur á hótelum og netkaffihúsum vegna þess að ef til vill hafa óprúttnir aðilar komið fyrir tæki til að skrá lyklaborðsinnsláttinn, svokölluðum keylogger-búnaði til að skrá t.d. aðgangsorðin. Hægt er að takmarka áhættuna með því forðast að gefa upp kredikortaupplýsingar þegar farkubburinn er notaður á tölvu. Það gefur líka augaleið að ekki er öruggt að nota heimabanka í slíkum tölvum.
 
Dulkóðun er nauðsynleg: Þeir sem vinna með viðkvæm skjöl ættu að hafa þau dulkóðuð þegar þau eru vistuð á minniskubbinum. Opni hugbúnaðurinn TrueCrypt eða ókeypis geymsluforritið IZarc2Go bjóða bæði upp á dulkóðunartól sem hægt er að keyra á minniskubbum.
 
Í flestum tilvikum verður að taka afrit af skjölunum úr dulkóðuðu möppunni eða geymslunni áður en unnið er í þeim og síðan að afrita þau aftur yfir þegar hætt er að vinna í þeim. Til að auka öryggið er best að nota tætitól (shredding) til að eyðileggja vinnsluútgáfurnar (að sjálfsögðu eftir að þær hafa verið afritaðar yfir í dulkóðuðu möppuna). CyberShredder  og UltraShredder  eru tvö ókeypis fartól sem leysa verkið vel af hendi.
 
Öryggisafrit af farvinnslukerfinu. Vegna þess að hve litlir minniskubbar eru og auðvelt er að týna þeim er nauðsynlegt að öryggisafrita USB-fartölvuna, jafnvel enn frekar en aðaltölvuna. Forritin eru mun minni þannig að öryggisafritunin er hraðvirkari og skrárnar taka mun minna pláss. Allir vöndlar með farforritum sem fjallað hefur verið um í þessari grein eru búnir öryggisafritunartólum.
 
Auðvitað er engin sérstök þörf fyrir slíkt tól, það er líka hægt að nota bara Windows-vafrann til að draga það sem er á minniskubbnum yfir í möppu á tölvunni. Mikilvægast er að gera þetta reglulega.








15. ágúst 2007| Betra hljóð









Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.


15. maí 2006| Bill Gates / 10/2005
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð. Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt


   
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun





© Allur réttur áskilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. • Borgartúni 23 • 105 Reykjavik • S. 512 7575 • Fax. 561 8646 • heimur@heimur.is