Half Life leikirnir eru meðal bestu skotleikja sem að hafa komið á markaðinn. Hér hefur allt farið saman sem prýða má góðan tölvuleik, grafík, saga, raddsetning, flæði og leikhæfni. Half life 2: Episode 2 er þar enginn undantekning, leikurinn rennur áfram ljúfur og tær á skemmtilegum söguþræði og
Þökk sé hröðum örgjörvum, miklu vinnsluminni og harðdiskaplássi er hægt að fá marga kosti þess að nota margar, mismunandi tölvur með því að setja upp sýndarvélahugbúnað á eina tölvu.
Uppsetning 3: Að nota tilbúin-til-keyrslu sýndarvélatól með VMware Player
Hingað til hefur ferlið við að setja upp og stilla gestastýrikerfið með sýndarvélahugbúnaði virst auðvelt. En til að af fá flóknari borðtölvu eða netstýrikerfi til að virka í sýndarvél getur verið erfiðara, einkum ef maður er ekki meða alla stillimöguleika stýrikerfisins á hreinu. Hvað ef það væri nú hægt að stinga stýrikerfi einfaldlega í samband og sjá hvernig það kemur út ?
VMware býr til eitt af bestu, ókeypis sýndarvélaforritunum, VMware Server 2.0. Til að fá stuttar leiðbeiningar um hvernig eigi að setja upp VMware Server í Windows er hægt að lesa þennan hluta " í þessari grein.
Það er óþarfi að fara í gegnum öll þessi skref hins vegar ef ætlunin er að prófa stýrikerfi eða netforrit. Með aVMware Player er hægt að keyra stýrikerfi og annan hugbúnað sem þegar hefur verið sett upp eins og um myndband væri að ræða eða PowerPoint glærusýningu, en að nota þetta tól er stórsniðugt til að meta möguleika tiltekins forritsins á mjög fljótlegan hátt.
VMware hýsir hundruðir þessara forrita á Virtual Appliance Marketplace torgi sínu fyrir sýndarforrit og eru þau allt frá því að vera nokkur megabæt (fyrir sumar smærri útgáfur af Linux) allt upp í nokkur gígabæt. Þó svo að til sé aragrúi af Linux-útgáfum þá getur VMware sýndarforrit verið frábær leið til að prófa prufuútgáfu af uppáhalds Linux-útgáfunni, án þess að leyfa því að leika lausum hala á tölvunni. Flest tólin eru opin, á netgrunni og eru með netafritunartólum, gagnastýringarkerfum, netöryggisa- og netumferðargreiningartækjum, póstnetþjónum og ruslpóstsíum, eldveggjum, PBX og VOIP netþjónum og SAN og NAS netþjónum.
Til að keyra forrit þarf að byrja á því að hala niður og setja upp VMware Player og hlaða síðan niður því sýndartóli sem á að prófa (ég valdi nýlega útgáfu af OpenBSD Unix OS stýrikerfinu). Viðmót VMware Player býður bæði upp möguleika til að hala niður og ræsa forrit. Þegar hætt er í spilaranum er staða forritsins vistuð sjálfgefið, en það er þó nokkrir aðrir valmöguleikar í boði. Ef stutt er á Ctrl-F verða músin og lyklaborðið virk í sýndarforritinu en með því að styðja á Ctrl-Alt fær hýsistýrikerfið aftur stjórn yfir músinni og lyklaborðinu.
Nú eru viðsjárverðir tímar í efnahagslífinu og þegar þetta er skrifað að kvöldi mánudagsins 6. október er erfitt að átta sig á því hver þróunin verður næstu daga. Ljóst er þó að fyrir dyrum stendur allsherjar uppstokkun þar sem allar forsendur í atvinnulífi landsmanna breytast og forgangsraða þarf upp á nýtt.
Það er við hæfi á þessum tímamótum að fjalla um mann sem aldrei hefur verið fjallað um í þessum dálki. Maðurinn heitir Bill Gates en hann, ásamt Paul Allen, stofnaði tölvurisann Microsoft og saman umbyltu þeir tölvugeiranum um alla framtíð.
Mikið hefur verið skrifað um Bill Gates, allt
AGR er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum til hagræðingar í rekstri. Lausnir AGR, sem eru á sviði hugbúnaðar, ráðgjafar og kennslu, miða að betri nýtingu auðlinda með aðferðum aðgerðarannsókna. Fyrirtækið hefur nú þegar vakið athygli erlendis fyrir lausnir sínar og hyggst hasla sér völl erlendis, m.a. með opnun