leita



 

 

 
Friends of Heimur:
sunglasses
http://www.extratour.de
   


 
Skráið ykkur á póstlista
28/01/2010 | 16:09

Snæfellsbær draumasveitarfélagið

Aðalefni nýjasta tölublaðs Vísbendingar er umfjöllun um draumasveitarfélagið. Metin eru 38 stærstu sveitarfélögin miðað við fjárhagslega stöðu. Sveitarfélögin eiga í miklum erfiðleikum eftir að efnahagsgrunnurinn hrundi. Þau sveitarfélög sem hugðust lækka vaxtabyrði með erlendum lánum sitja nú í lauginni. Garðabær og Seltjarnarnes koma best út undanfarið kjörtímabil, en Snæfellsbær er draumasveitarfélagið að þessu sinni. Neðst á listanum er Borgarbyggð.

Úr greininni sem nefnist Sveitarfélögin sökkva í laugina:

Einkunnagjöfin endurspeglar erfitt árferði. Ekkert sveitarfélag er nær einkunni 7,0. Efstur er Snæfellsbær, en Hornafjörður og Garðabær fylgir fast á eftir. Önnur sveitarfélög sem ná einkunninni 5,0 eru  Seltjarnarnes, Dalvíkurbyggð og Húnaþing vestra.
Í töflu má sjá einkunnagjöfina undanfarin þrjú ár. Einstaka óvenjulega útgjöld eða tímabundin staða getur ruglað einkunnagjöfina einstök ár, en ólíklegt er að það standi lengi. Því er að þessu sinni litið á einkunnir undanfarin þrjú ár. Þá skera tvö bæjarfélög sig úr, jöfn í efsta sæti: Seltjarnarnes og Garðabær. Hvað er það sem gerir þessi bæjarfélög góð?

Útsvarsprósentan er lægri þar en annars staðar. Hjá fjölskyldu með 5 milljón króna árstekjur var útsvarið 46 þúsund krónum lægra á Seltjarnarnesi en í Reykjavík. Þetta jafngildir um það bil 2 % hærri ráðstöfunartekjum. Skuldir sem hlutfall af tekjum eru innan við 100% í báðum bæjarfélögunum.
Athygli vekur að höfuðborgin fær 3,8 í þriggja ára meðaltal og er lendir í 23. sæti og er á svipuðum slóðum og undanfarin ár.

 


06. september | Hó, hó, ha, ha, ha (BJ)
Ef það er eitthvað sem ég er lítið gefinn fyrir er það hópefli. Orðið sjálft vekur hjá mér gæsahúð. Nánd við aðra finnst mér líka óþægileg. Ef einhver grípur í mig, ég tala ekki um vill faðma mig, þá hrekk ég undan. Ég geri kannski undantekningu með




07. september | The Ghost Writer
Það er mikil synd að einkalíf Roman Polanski, sem hefur verið þyrnum stráð svo ekki sé meira sagt, skuli alltaf gnæfa yfir afrek hans á listasviðinu, sérstaklega nú í kjölfar handtöku hans í Sviss fyrir um ári síðan. Hefur handtakan og eftirmálin gert það að verkum að nýjasta kvikmynd hans





 




© Allur rettur askilinn heimur.is (Heimur hf)
Heimur hf. Borgartúni 23 105 Reykjavik S. 512 7575 Fax. 561 8646 heimur@heimur.is